Skinfaxi - 01.08.2006, Qupperneq 8
Úrýmsumáttum:
Stórsýningin 3L Expo
var haldin í Egilshöllinni i Grafar-
vogi dagana 7.-11. september og
var fjöldi manns samankominn
við opnunina. Á sýningunni fundu
allir eitthvað við sitt hæfi því að
sýningarrýmið var um 20 þúsund
fermetrar. Ungmennafélag Islands
var þátttakandi í sýningunni þar
sem starfsemi hreyfingarinnar var
kynnt fyrir gestum. Margir komu
við í bás UMFl og fræddust um
starfsemina. Yfi rskrift sýningarinnar
var Vellíðan og heilsa.
Um 30 þúsund gestir sóttu
sýninguna sem þótti heppnast í
alla staði mjög vel. Þeirfjölmörgu,
sem komu við í sýningarbás UMFl,
vildu fá að fræðast um margt í
starfseminni, og varð þeim tiðrætt
um Unglingalandsmótin sem hafa
treyst sig í sessi. Þátttaka UMFl í
sýningunni náði vonandi mark-
miði sínu og víst er að fleiri er
fróðari um hreyfinguna en áður.
Margir litu inn í sýningarbás UMFÍ
Velheppnað leikjanámskeið
í Íþróttaakademíunni
I byrjun september stóð Iþrótta-
akademían í Reykjanesbæ, í sam-
starfi við UMFf, fyrir námskeiði
í nýjum leikjum fyrir starfsfólk
leikskóla, skólaliða og íþrótta-
kennara. Námskeiðið vakti mikla
lukku og samtals sóttu það um
100 manns.
Kennarinn, Britt Jensen, kemur
frá Geriev Legepark í Danmörku
og hún talaði um að það væri
einstaklega skemmtilegt að
kenna Islendingum vegna
þess hversu áhugasamir og
agaðir þeir væru. Britt kenndi
hópunum marga leiki sem koma
til með að nýtast vel í starfi og
útskýrði vel við hvaða aðstæður
leikirnir væru kjörnir, eins og t.d.
þegar krakkar eru að kynnast
eða virkja þarf einhverja sem
verða útundan.
6. stjórnarfundur
UMFÍvar haldinn
á Hornafirði
6. stjórnarfundur Ung-
mennafélags Islands
var haldinn á Höfn í
Hornafirði dagana
1.-3. september.
Fundurinn fórfram á
hótelinu og lá fjöldi
mála fyrir fundinum.
Fram undan eru stórviðburðir hjá UMFl en á næsta ári heldur
hreyfingin upp á 100 ára afmæli sitt. Landsmót UMFlverður haldið
í Kópavogi dagana 5.-8. júlí og sem endranær verður Unglinga-
landsmót UMFÍ haldið um verslunarmannahelgina og í þetta sinn á
Hornafirði.
8 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands