Skinfaxi - 01.08.2006, Page 11
íþróttadagur á Selfossi:
Kappar stinga saman nefjum. Frá vinstrí Þórir Haraldsson núverandi formað-
ur Umf. Selfoss, Björn B. Jónsson formaður UMFÍ, Koibeinn I. Kristinsson
heiðursfélagi og Hafsteinn Þorvatdsson formaður Umf. Selfoss 1962.
Frá keppni í farsímakasti á Selfossvelli, en hún mun hafa veríð sú fyrsta sinnar
tegunar sem haldin erhérá landi.
Umf. Selfoss minntist tímamóta
Ungmennafélag Selfoss hélt íþróttadag á Selfossvelli laugardag-
inn 9. september síðastliðinn. Var hann haldinn til að minnast
þess að félagið á 70 ára afmæli á árinu. Tilgangurinn var að koma
saman, ungir sem aldnir, og eiga góða stund hluta úr degi. Nokkr-
ir fyrrverandi formenn félagsins mættu ásamt heiðursfélaga og
áttu gott spjall.
Veður hefði mátt vera betra en engu að síður var farið í leiki,
knattspyrnu, knattþrautir og m.a. keppt í farsímakasti þar sem
Guðmundur Þórarinsson bar sigur úr býtum. Einnig kepptu þrjú
lið í stígvélasparki sem fólst í því að koma stígvéli langleiðina yfir
knattspyrnuvöll í nokkurs konar boðhlaupi. Eftir jafna og spenn-
andi keppni flaug stígvél frá liði Björns B. Jónssonar, formanns
UMFl, fyrst í mark. Með Birni í liði voru þau Thelma Sif Kristjáns-
dóttir og Sindri Pálmason. Á eftir var sest niður við kaffi og kökur í
félagsheimilinu Tíbrá. Allir fengu sérstakt afmælismerki í barminn.
f tengslum við íþróttadaginn gaf félagið út blað í stóru broti
um vetrarstarfið og var því dreift i öll hús á Selfossi. Þar var sagt
frá starfi og æfingatímum allra deilda félagsins en þær eru: fim-
leikadeild, júdódeild, handknattleiksdeild, sunddeild, körfuknatt-
leiksdeild, frjálsíþróttadeild og knattspyrnudeild.
Hollustukarfa
í hollustukörfunni er matur
í samræmi við ráðlegging-
ar Manneldisráðs um mat-
aræði og næringarefni.
Hérfærð þú nánari upp-
lýsingar um það hvað er í
hollustukörfunni.
• 500 g af grænmeti, ávöxt-
um og safa á dag fyrir full-
orðna, þar af a.m.k. 200 g af
grænmeti, 200 g af ávöxt-
um auk kartaflna. Hýði eða
stönglar sem fara forgörðum
teljast ekki með í 500 g.
• Tvö glös, diskar eða dósir af
mjólk eða mjólkurmat á dag.
Gert er ráð fyrir fitulitlum
og lítið sykruðum vörum að
mestu leyti. Ostur kemur í
stað mjólkurvara að hluta til.
25 g af osti jafngilda einu
glasi eða diski af mjólkurvör-
um.
• Fisk- og kjötmáltíðir eru
hvor um sig tvisvar til þrisvar
í viku (10 sinnum í mánuði)
en grænmetis-, bauna eða
pastamáltíðir tvisvar í viku.
Gert er ráð fyrir 100-150 g
af kjöti, fiski, eggjum eða
baunum á dag, álegg þar
með talið.
• Brauð, morgunkorn, pasta
og hrísgrjón er gefið upp í
skömmtum í hollustukörfu.
Einn skammtur er annaðh-
vort meðalstór brauðsneið,
1,5 dl af morgunkorni, 1 dl
af soðnum hrísgrjónum eða
pasta eða 1 stk kex (15 g).
Hvorki meira né minna en 9
skammtar lenda í hollustu-
körfu dag hvern og þar er
meira af grófu brauði en fínu.
• Fita er höfð í hófi og meira
um olíu eða mjúka fitu í stað-
inn fyrir harða fitu á borð við
smjörlíki eða smjör.
• Það er lítið af sykri, kökum,
sætindum, ís og gosdrykkj-
um í hollustukörfunni. Þeir
sem borða þessar vörur að
ráði þurfa yfirleitt að minnka
annan mat á móti, eigi þeir
ekki að fitna. Eitt algengt
súkkulaðistykki er t.d. á við
þrjár lítið smurðar brauð-
sneiðar í hitaeiningum og
barnastærð af ís er með jafn-
margar hitaeiningar og þrjú
glös af léttmjólk.