Skinfaxi - 01.08.2006, Side 15
Unglingalandsmótið á Laugum:
fyrirmyndarfélag
Ungmenni af Vesturlandi gerðu góða ferð á
Unglingalandsmót UMF( sem haldið var á Laug-
um í Reykjadal 4.-6. ágúst. Lið frá HSH, UMSB,
UDN og Akranesi voru meðal keppenda, alls
hátt á annað hundrað krakkar. Árangur Vest-
lendinga var ágætur og komust margir þeirra
á verðlaunapalla. Sérstök háttvísiverðlaun, eða
fyrirmyndarbikarinn, hlaut 47 manna lið HSH
en viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi
umgengni, háttvísi og prúða framgöngu.
Að sögn Garðars Svanssonar, annars af farar-
stjórum HSH-fólks, er hann afskaplega stoltur
yfir þessari viðurkenningu. Sagði hann jafnframt
að heimamenn í Þingeyjarsýslum geti verið stolt-
ir yfir góðu móti sem gekk í alla staði vel og var
hnökralaust í undirbúningi og framkvæmd allri.
Á myndinni má sjá lið HSH með fyrirmyndar-
bikar mótsins á Laugum.
Árlegur íþróttadagur Sérgreinastjórar á
Æskunnar á Svalbarðseyri Landsmótinu 2007
Laugardaginn 2. september hélt Umf. Æskan á Svalbarðsströnd
sinn árlega íþróttadag á íþróttavellinum á Svalbarðseyri. Líkt og
undanfarin tvö ár hélt Kvenfélag Svalbarðsstrandar samtímis
markaðs- og uppskerudag þar sem uppskera haustsins var til sölu
auk þess sem kaupa mátti kaffi og meðlæti.
Dagurinn tókst með ágætum, þrátt fyrir leiðindaveður. Rúm-
lega 50 ungmennafélagar kepptu í frjálsum íþróttum og voru
yngstu keppendurnir þriggja ára en þeir elstu á sextugsaldri. Hér
fyrir neðan má sjá mynd frá deginum.
Búið er að fá sérgreinastjóra í allar aðalkeppnisgreinar 25.
Landsmóts UMFÍ. I byrjun september komu þeir saman á fundi
þarsem farið varyfir helstu mál varðandi undirbúning keppnis-
greinanna. Á næstu vikum munu þeir fara yfir helstu mál varð-
andi viðkomandi greinar, s.s. reglugerðir og aðstöðuþörf.
Sérgreinastjórar mótsins eru:
Blak: Vilborg Guðmundsdóttir
Borðtennis: Snorri Páll Einarsson
Bridds: Björgvin Már Kristinsson
Dans: Hafsteinn Örn Guðmundsson
Fimleikar: Kristján Erlendsson
Frjálsar íþróttir: Magnús Jakobsson
Glíma: Kristján Yngvason
Golf: Jóhann Gunnar Stefánsson
Handbolti: Þorsteinn Einarsson
Hestaíþróttir: Bjamleifur Bjarnleifsson
(þróttir fatlaðra: Þórður Hjaltested
Knattspyrna: Atli Þórsson
Körfubolti: Bjarni Gaukur Þórmundsson
Siglingar: Kjartan Sigurgeirsson
Skák: Páll Sigurðsson
Skotfimi: Steindór Hrannar Grímarsson
Sund: Úlfhildur Haraldsdóttir
Starfsíþróttir: fþróttir eldri Kristján Sveinbjörnsson
ungmennafélaga: Margrét Bjarnadóttir
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 15