Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2006, Síða 23

Skinfaxi - 01.08.2006, Síða 23
Forvarnaverkefnið Flott án fíknar Guðrún Snorradóttir verkefnisstjóri Ungmennafélag fslands er farið af stað með forvarnaverkefnið Flott án fíknar. Verkefnið er eitt af mörgum verkefnum UMFl' til að skapa heilbrigða unglingamenningu. Verkefnið Flott án fíknar tekur til forvarna þriggja þátta, neyslu tóbaks, áfengis og ólöglegra vímuefna. Verkefn- inu er ætlað að stuðla að því að unglingar virði landslög varðandi tóbak og áfengi. Með því draga einstaklingar verulega úr áhættu á því að verða fíklar síðar á ævinni. Hugmyndin er að styðja þann stóra hóp unglinga sem er í góðum málum og gera hann stærri og sterkari í afstöðu sinni um heilbrigt líf. Verkefnið Flott án fíknar hófst í Lindaskóla í Kópavogi og hefur verið í þróun þar í fjögur ár. Það var í upphafi hugsað fyrir unglinga á grunnskólaaldri en nú hefur einn framhaldsskóli sýnt verkefninu áhuga. Það krefst þess að hafa umsjónarmann í hverri stofnun/ skóla fyrir sig og hafa nú þegar sex grunnskólar stofnað klúbb. Verk- efnið byggist á samingsbundnu klúbbastarfi og viðburðadagskrá þar sem klúbbmeðlimir hittast og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggilegt saman. Unglingar sem óska eftir að ganga í klúbbinn Flott án fíknar gera eftirfarandi heit: • Ég undirrituð/aður óska hér með eftir að vera meðlimur í klúbbnum og heiti því að vera án tóbaks og allra vímuefna svo lengi sem ég stunda nám við grunnskóla. Ég hef kynnt mér reglur hópsins og rætt við foreldra mína. Reglur klúbbsins: • Allir þeir sem eru reyk- og vímu- efnalausir og ætla sér að láta það ógert að fikta við slíkt meðan þeir eru í grunnskóla geta sótt um inn- göngu í klúbbinn. • Klúbbmeðlimir kynna klúbbinn fyrirforeldrum, fá undirritun þeirra og skrifa sjálfir undir umsókn/ samning sem þeir síðan koma með til umsjónarmanns klúbbsins sem einnig skrifar undir og geymir samninginn. • Klúbbmeðlimir fá boð um ýmsa skemmtun og/eða afþreyingu nokkrum sinnum á ári sem verður ódýr eða ókeypis. • Verði nemandi uppvís að því að gerast brotlegur við samninginn missir hann af næstu þremur tilboðum. • Verði nemandi uppvís að endur- teknu broti við samninginn verður litið svo á að hann ætli sér ekki lengur að vera með í klúbbnum. Áætlað er að kynna verkefnið fyrir öllum grunnskólum landsins á næstu þremur árum og hefja samstarf við einn framhaldsskóla um stofnun klúbbs. Leitað verður eftir samstarfi við aðra aðila sem sinna unglingum til að hægt verði að fylgja þeim eftir allt árið. Unnið verður að heimasíðu fyrir verkefnið og komið upp fræðslustarfi fyrir klúbbstjóra. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 23

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.