Skinfaxi - 01.08.2006, Blaðsíða 25
Aukin sóknarfæri skapast
við opnunina á ísafirði
Ungmennaféiag íslands opnaði skrifstofu
í Gamla apótekinu á ísafirði 7. október sl.
og er það fyrsta skrifstofa félagsins þar sem
starfar svæðisfulltrúi í fullu starfi. Með
opnuninni er UIVIFÍ að stíga fyrsta skrefið í
að opna skrifstofur með svæðisfulltrúum
um allt land.
Fyrir eru tveir landsfulltrúar sem vinna fyrir landið í
heild, á Sauðárkróki og í Reykjavík, og er vinna hafin
við að opna fleiri skrifstofur á landinu.
Torfi Jóhannsson er svæðisstjóri á (safirði. Margt
manna var við opnunina og voru þar m.a. nokkrir
þingmenn kjördæmisins.
Torfi Jóhannssson sagði í samtali við Skinfaxa
að starfið legðist mjög vel í sig og hann væri fullur
tilhlökkunnar. Starfið væri áhugavert og uppbyggj-
andi fyrir svæðið í heild sinni. Hver dagur væri spennandi og hann liti
björtum augum fram á veginn. Aðspurður hvort hann hefði komið nálægt
starfi í ungmennafélagshreyfingunni sagði hann ekki svo vera.
„Ég hef aftur á móti verið í stjórn íþróttafélaga en ekki unnið í beinum
tengslum við ungmennafélagshreyfinguna."
- Sérðu fleiri tækifæri með opnun skrifstofunnar hérá ísafirði?
„Já, það geri ég. Fólk hér af svæðinu sér fleiri möguleika nýtast með
tilkomu skrifstofunnar. UMFÍ erað bjóða upp á menntun og námskeið af
ýmsu tagi sem fólk mun eflaust nýta sér í auknu mæli."
- Hefur eitthvað komið þér á óvart istarfinu fram að þessu?
„Ekki í sjálfu sér. Það er þó einna helst hvað tækifærin eru mörg og
þau verðum við að nýta eins og kostur er. Með opnun þessarar skrifstofu
opnast margir möguleikar fyrir UMF( og ef til vill enn fleiri fyrir fólkið hér á
svæðinu að nota UMF( meira en það hefur gert áður," sagði Torfi Jóhanns-
son, svæðisfulltrúi UMF( á (safirði, í samtali við Skinfaxa.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 25