Skinfaxi - 01.08.2006, Page 29
Stórkostleg reynsla og mikill skóli
Magni Ásgeirsson, söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól, sló rækilega í
gegn í Rockstar Supernova nú á haustdögum. Eins og flestir líklega vita
gekk þessi keppni út það hver yrði næsti söngvari hljómsveitarinnar
Rockstar Supernova. Bein útsending var á þáttunum í sjónvarpi hér heima
og fylgdust Islendingar grannt með sínum manni og þá alveg sérstaklega
þegar leið á keppnina. Magni heillaði forsprakka hljómsveitarinnar og
sjónvarpsáhorfendur um allan heim. Eftir því sem á keppnina leið æstust
leikar til muna og fólk lá límt við sjónvarpstækin. Skipti engu þótt beinar
útsendingar væru á nóttinni sökum tímamismunar á Islandi og í Los
Angeles.
Magni komst alla leið I úrslitaþáttinn þar sem fjórir söngvarar háðu
keppni um sigurinn. Það fór svo að lokum að okkar maður hafnaði í fjórða
sæti, sannarlega frábær árangur og var framganga Magna mikil landkynn-
ing.
Þær frábæru móttökur sem Magni fékk við heimkomuna fóru víst
fram hjá fáum en nokkur þúsund manns voru samankomin í Smáralind
þar sem sérstök móttökuhátíð var haldin.
- En hvað segirMagni sjálfur um þátttöku sína íkeppninni?
„Þetta var meiriháttar lífsreynsla sem á örugglega eftir að nýtast mér
í framtíðinni. Hvert sem augum er litið var þetta hreint ævintýri út af fyrir
sig. Keppnin var hörð en maður kynntist góðu fólki sem maður á eftir að
verða í sambandi við áfram," sagði Magni.
- Hvað erfram undan hjá Magna eftirþessa mögnuðu frammistöðu i
Bandaríkjunum?
„Það er ýmislegt í farvatninu sem ekki er hægt að upplýsa alveg strax
um en margt á eftir að skýrast í þeim efnum. Það er þó í bígerð og nokkuð
öruggt að ég fari til Kanada og Bandaríkjanna á næstunni. Það hafa opn-
ast nokkrir möguleikar sem tíminn mun leiða í Ijós hvort eitthvað verði
úr. Það verður ekki annað sagt en það séu spennandi tímar fram undan,"
sagði Magni Ásgeirsson og hafði greinilega í mörg horn að líta.
Magni gaf sér þó tíma og svaraði nokkrum spurningum.
Eftirminnilegasta augnablik:
Þegar Marinó sonur minn kom í
heiminn.
Fyrirmynd: Enginn sérstakur.
Fleygustu orð: ET'S GO
Áhugamál: Tónlist.
Hvers gætirðu síst verið án:
Gítarsins.
Hvað tækirðu með þér á eyði-
eyju: Gítarinn og sólarknúinn
gemsa.
Hvað er ómissanrii: Gítarinn.
Ef þú ynnir milijón í happdrætti:
Spila ekki íhappdrætti.
Hvað gleður þig mest:
ÞegarMarínó brosir.
Erfiðasti andstæðingurinn:
Það erég sjálfur.
Besti knattspyrnumaðurinn:
Pele.
Hvaða íslenskur íþróttamaður
stendur fremstur í dag:
Eiður Smári Guðjohnsen.
Besti íþróttamaður í heimi í dag:
Ronaldinho.
Fallegasti kvenmaður sem þú
hefur séð fyrir utan maka:
Á fslandi eru allar konur fallegar.
Mottó í framtíðinni: Don't panic.
Uppáhaldssöngvari:
Bono og Eddie Vedder.
Fullt nafn:
Guðmundur Magni Ásgeirsson.
Fæðingarstaður: Egilsstaðir.
Maki: Eyrún Huld Haraldsdóttir.
Aldur: 28.
Starf:Tónlistarmaður.
Bifreið: Lexus.
Uppáhaldsmatur:
Kjúklingur a la Eyrún.
Uppáhaldsdrykkur: Pepsi Max.
Besti prentmiðllinn: Q-magazine?
Besti Ijósvakamiðillinn: VHl.
Uppáhaldssjónvarpsþættir:
Lost og Prison break.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Conan og Ellen.
Besta íslenska bíómynd sem þú
hefur séð: Með allt á hreinu.
Besta erlenda bíómynd sem þú
hefur séð: Erfitt að segja - Walk
the line.
Besti leikari íslenskur:
Hilmir Snær.
Besti söngvarinn í Rockstar
Supernova: Josh Logan.
Besti leikari erlendur:
Anthony Hopkins.
Uppáhaldstegund
tónlistar: Rokk.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 29