Skinfaxi - 01.08.2006, Qupperneq 30
Baldur Daníelsson, formaður Unglingalandsmótsnefndar á Laugum:
Að loknu
Unglinga-
landsmóti
Jæja, mikið er nú gott að þetta er
búið. Eitthvað á þessa leið voru
örugglega fyrstu hugsanirnar sem
liðu í gegnum svefnvana kollinn
á manni mánudagsmorguninn 7.
ágúst. En þráttfyrir þreytumerkin
var ánægjutilfinning samt ríkjandi
þennan morgun. Stærstur hluti
mótsgesta var enn á tjaldsvæðinu
og dundaði sér við að taka niður
viðlegubúnað eða gerði sig líklega
til þess að skella sér í sund.
Veðrið var frábært og geðslag
manna í samræmi við það.„Frábært
mót hjáykkur, alveg til fyrirmyndar."
Viðbrögðin voru öll á eina lund.
Þeir sem höfðu ábendingar um
hvað betur hefði mátt fara héldu
sig til hlés, kannski um annað að
hugsa í veðurblíðunni, eða nenntu
því ekki bara akkúrat á þessu
augnabliki. Allt að einu er Ijóst að
allflestir gestir á Unglingalands-
mótinu á Laugum yfirgáfu svæðið
með sól í sinni eftir minnisstæða
lokadagskrá á íþróttavellinum
kvöldið áður. Ég legg hér með til
að mótshaldarar hverju sinni sjái til
þess að það verði ávallt sól á mánu-
degi eftir Unglingalandsmót.
Þegar frá líður og maður lítur til
baka eru nokkur atriði sem vert er
að huga að fyrir næsta, já og næstu
mót. Hingað að Laugum kom
umtalsvert meira af fólki með kep-
pendum heldur en við bjugg-umst
við, með hliðsjón af fyrri mót-
um, já og einnig var á þessu móti
mikið af fólki með börn og ungl-
inga sem voru ekki skráðir kepþ-
endur á mótinu en voru hér sam-
an á hátíð sem ætlað er að brúa
kynslóðabil þótt hún sé kennd við
unglinga. Hátíð þar sem peninga-
plokk víkur fyrir lífsgildum ung-
mennahreyfingarinnar.Tjaldsvæð-
in sprungu, eða næstum því. Og
það var ekki bara fleira fólk, heldur
þarfnast viðlegubúnaður nútíma-
mannsins sífellt fleiri fermetra. Er
það álit flestra að þessi þróun hafi
verið mjög ör frá móti til móts. Því
þarf að reikna með stærra og
stærra plássi fyrir tjaldbúðir í fram-
tíðinni, sem og allri þeirri þjónustu
sem fylgja þarf. Þetta þýðir að vísu
mikil útgjöld fyrir mótshaldara,
sem menn verða hins vegar að
mæta með einum eða öðrum
hætti, hugsanlega aukagreiðslu
fyrir tjaldsvæði.
Þá var og áberandi munur á
nýtingu tjaldsvæða og getur mað-
ur sér þess til að tjaldbúðastjórar
hafi verið misstjórnsamir. Á að
skipuleggja tjaldsvæði þannig að
fólk geti tjaldað tvist og bast og
haft rúmt pláss í kringum sig og
jafnvel fortjöld eða á að vera mark-
viss stjórnun af hálfu héraðssam-
BRafhönnun ©
bandanna hvað þetta varðar? Um
leið og menn velta þessu fyrir sér
þarf að leiða hugann að því á hvað
forsendum fólk sækir Unglinga-
landsmót. Er fólk á vegum ung-
mennafélaga og héraðssambanda
eða fyrst og fremst sem fjölskyldur
á eigin vegum?
f framhaldi þarf síðan að leiða
hugann að skráningarmálum og
hvernig haldið er utan um þau. Á
fólk að skrá sig í gegnum héraðs-
samböndin sem einstaklingar eða
á að bjóða áfram upp á báða þessa
möguleika? Hvernig vill ung-
mennafélagshreyfingin tryggja að
öll börn og unglingar, sem áhuga
hafa á að taka þátt, geti það, jafn-
vel án milligöngu ungmenna- eða
íþróttafélags? Hvert svo sem svarið
verður við þessum spurningum
er Ijóst að endurskoða/-bæta þarf
þessi mál gaumgæfilega í vetur
enda algjörforsenda fyrir því að
framkvæmd íþróttahluta mótsins
gangi hnökralaust fyrir sig.
Sitthvað fleira mætti tína til en
þessi atriði eru a.m.k. þau sem mér
eru efst í huga þegar maður fer
yfir framkvæmd mótsins, atriði
sem vert er að fara yfir fyrir næsta
mót og laga. En aðalatriðið er hins
vegar það að mótið tókst vel og
var mínu mati ungmennafélag-
shreyfingunni til mikils sóma.
Sjáumst hress á Höfn.
9.UNGLINGA
LANDSMÓT
UMFÍ
/mAktm
Skagafjörður
Bi oddL
© 1 H
JD A G U R g rou p Landbúnaöarráðuneytið
30 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands