Skinfaxi - 01.12.2007, Qupperneq 4
Þorlákshöfn , .. ,,
11. Unglingalandsmót UMFÍ verður
haldið í Þorlákshöfn dagana 1 .-3. ágúst
2008.11. nóvember voru undirritaðir
samningar í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn, annars
vegar á milli unglingalandsmótsnefndar og
Sveitarfélagsins Ölfuss og Ungmennafélags
íslands og Héraðssambandsins Skarphéðins
hins vegar.
Mikil uppbygging er í vændum fyrir mótið
en þegar er búið að tyrfa knattspyrnuvöllinn og
byggja mön í kringum hann. Malbikað verður
undir hlaupabrautina strax í vor og er stefnt að
því að völlurinn verði tilbúinn snemma sumars.
Vinna við nýja sundlaug gengur samkvæmt
áætlun og fram hefur komið áhugi á að efla
keppni í hestaíþróttum á mótinu.
Á Unglingalandsmótinu verður keppt í frjáls-
um íþróttum, glímu, golfi, hestaíþróttum, knatt-
spyrnu, körfuknattleik, skák og sundi. I athugun
er að keppt verði einnig í mótorkrossi og jafnvel
í fimleikum en ákvörðun um það verður tekin
síðar.
11.UNGLINGA
LANDSMÓT
UMFÍ
ss @
Velkomin til Þorlákshafnar
¥ ss k. SS
¥ ÍS L. ,
v ís C *,* ssi
§ ¥ ss L I
¥ s k. f* m
it V s 1
B * V &
ÚlafurÁki Ragnarsson, bæjarstjóri iSveitarfélaginu Ölfusi, og Helga G. Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ætlum að standa okkur
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri i Sveitarfélag-
inu Ölfusi, sagði eftir undirritun samninganna,
að sveitarfélagið væri afar stolt yfir að hafa
fengið þetta verkefni sem Unglingalandsmótið
er. „Þetta á eftir að þjappa fólki saman og
hvetur okkur sveitarstjórnarfólkið til dáða. Við
fórum út í miklar framkvæmdir þó að þær teng-
ist ekki allar beint mótinu sjálfu, en það hvatti
okkur eigi að síður að ráðast í þær samhliða mót-
inu. Við ætlum að standa okkur vel hvað mótið
sjálft varðar og ég held að það eigi eftir að verða
öllum til sóma," sagði Ólafur Áki.
Fyrsta flokks aðstæður
Ragnar Sigurðsson, formaður unglingalands-
mótsnefndar, sagði það mikla áskorun að taka
svona mót að sér. Undirbúningur stæði yfir af
fullum krafti og allt ferlið gengi samkvæmt áætl-
un. „Samfara þessu móti á sér stað gríðarleg
uppbygging. Það stóð ýmislegt til áður en Ungl-
ingalandsmótið varð þó til þess að framkvæmd-
um var flýtt á ýmsum sviðum. Við sjáum fyrir
okkur að mótið muni fara fram við fýrsta flokks
aðstæður í öllum greinum. Það eru tvímælalaust
spennandi tímar fram undan í Þoriákshöfn,"
sagði Ragnar Sigurðsson, formaður unglinga-
landsmótsnefndar.
Samningurinn handsalaður. Frd vinstri Ragnar Sigurðsson, formaður unglingalandsmótsnefndar, Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, ÓlafurÁki Ragnarsson, bæjarstjóri íSveitarfélaginu Ölfusi, og
Gísli Pdll Pálsson, formaður HSK.
4 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands