Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2007, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.12.2007, Blaðsíða 13
45. SamJpaAiMjHJUj UÁÁft Helga Guðrún Guðjónsdóttir kjörin formoður UMFÍ Helga Guðrún Guðjónsdóttir var einróma kjörin formaður Ungmennafélags íslands á þingi þess á Þingvöllum. Fráfarandi formaður, Björn B. Jóns- son, gaf ekki kost á sér til endurkjörs en hann hafði gegnt formennsku í sex ár. Helga Guðrún var ein í kjöri og er þetta í fyrsta skipti í 100 ára sögu UMFÍ sem kona er formaður í hreyfingunni. Birni voru þökkuð vel unnin störf í þágu hreyfing- arinnar og var hann sæmdur gullmerki UMFÍ. Við þingsetninguna á laugardag var hann sæmdur gullmerki fSÍ. Anna R. Möller var einnig sæmd gullmerki UMFI', en hún hafði setið í stjórn hreyf- ingarinnar í tíu ár. Anna gaf ekki kost á sér áfram og voru henni þökkuð frábær störf í þágu hreyf- ingarinnar „Á þessari stundu eru mér efst í huga þakk- læti, gleði, ánægja og væntingar. Það er bjart fram undan í hreyfingunni og mikill hugur. Þetta þing var mjög starfssamt og góður andi ríkti á því. Það er mikið í gangi I hreyfingunni á næst- unni og má í því sambandi nefna Play the Game- ráðstefnuna sem við höldum í samstarfi við Sam- tök íþróttafréttamanna og er liður í 100 ára afmæli UMF(. Svo að fylgja eftir öllum þeim góðu tillögum sem samþykktar voru á Sambands- þinginu um helgina. Bygging nýrra aðalstöðva stendur fyrir dyrum þannig að það er í nógu að snúast," sagði Guðrún Helga Guðjónsdóttir, nýkjörinn formaður UMFÍ. Nýkjörinn formaður UMFl, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, ásamt Birni B. Jónssyni fráfarandi formanni. Björn B. Jónsson sæmdur gullmerki UMFÍ og ÍSI Ólafur Rafnsson, forseti fSl, sæmir Björn gullmerki ISl. Björn B. Jónsson, fyrrum formaður UMFÍ, var sæmdur gullmerkjum UMF( og (Si á 45. sambandsþingi UMFÍ á Þingvöllum. Ólafur Rafnsson, forseti (þrótta- og Ólympíusambands (slands, sæmdi Björn gullmerki (Sl við þing- Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFf sæmir Björn gullmerki UMFÍ setninguna í Almannagjá. Björn var síðar á þinginu sæmdur gullmerki UMF(. Anna R. Möller var einnig sæmd gullmerki UMFÍ fyrir frábær störf í þágu hreyfingarinnar en hún gaf ekki kost á sér áfram til stjórnarsetu. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.