Skinfaxi - 01.12.2007, Qupperneq 7
RptvtjóraÁpjaU - Jók KriUjÓK SujtwÓssœn
Viðburðaríkt ár að baki
- bjartir tímar fram undan
Árið, sem nú er að renna sitt skeið á enda, hefur verið afar viðburðaríkt í
sögu Ungmennafélags fslands og skal engan undra. Kemur þar til aðeins
einn þáttur sem er 100 ára afmælisár hreyfingarinnar. Þessara merku
tímamóta hefur verið minnst með ýmsum hætti og er óhætt að segja að
merki UMFÍ hefur verið haldið á lofti hvarvetna og hreyfingin og það sem
hún stendur fyrir verið mikið í fréttum. Tvö stór mót voru haldið á árinu,
annars vegar 25. Landsmótið í Kópavogi og hins vegar 10. Unglinga-
landsmótið á Höfn í Hornafirði. Bæði mótin fóru mjög vel fram og voru
vel sótt af keppendum og gestum. Sögusýning var haldin í Gerðarsafni í
Kópavogi þar sem 100 ára sögu hreyfingarinnar voru gerð skil í máli og
myndum.
UMFÍ kom síðan að undirbúningi og framkvæmd Play the Game-ráð-
stefnunnar sem haldin var í Reykjavík í lok október. Ráðstefnan þótti
takast með afbrigðum vel en hana sóttu um 300 íþróttafréttamenn og
háskólafólk frá yfir 50 þjóðlöndum. 35. Sambandsþing UMFf var haldið
á Þingvöllum, nákvæmlega á þeim stað þar sem vormenn fslands komu
saman hundrað árum fyrr til að stofna landshreyfingu ungs fólks á fslandi
sem ætti sér það markmið að rækta lýðinn og landið. Á þessu fjölsótta og
afar velheppnaða þingi var nýrformaður kosinn og þau merku tímamót
urðu að Helga Guðrún Guðjónsdóttir var fyrst kvenna kjörin til að stýra
hreyfingunni.
Nú er afmælisárið senn að baki. Ungmennafélagshreyfingin stóð í
ströngu og þegar litið er um öxl má hreyfingin vera afar stolt og getur
horft bjartsýnisaugum til framtíðarinnar. I okkar hraðfleyga þjóðfélagi, þar
sem hlutirnir breytast fljótt, eru möguleikarnir endalausir. Styrkur og mátt-
ur UMFf er mikill og þessi fjölmennu samtök munu hér eftir sem hingað
vinna að góðum málum fyrir land og þjóð. Miklir og spennandi tímar blasa
við og krafturinn og áræðnin hafa aldrei verið meiri. Hreyfingunni hefur
vaxið fiskur um hrygg á síðustu misserum og hefur félögum fjölgað um
fjórðung frá aldamótum. Þetta eru gleðilegar staðreyndir og fylla hreyf-
inguna enn meiri krafti sem hún mun nýta sér úti á meðal fólksins.
Eitt af stóru verkefnum sem blasa við er bygging nýrra höfuðstöðva í
miðborg Reykjavíkur sem er í undirbúningi en þetta glæsilega mannvirki
mun gefa hreyfingunni aukna möguleika og um leið nýtast öllum ung-
mennafélögum um allt land.
Eins og endranær blasa við mörg spennandi verkefni á nýju ári. Stjórn
UMFf hefur samþykkt að stórefla íþrótta- og æskulýðsþátttöku fólks af
erlendum uppruna búsettu á (slandi. Þetta er verkefni næstu ára, ásamt
mörgum öðrum mikilvægum verkefnum hreyfingarinnar. Starfsemi ung-
' menna- og tómstundabúðanna að Laugum í Dalasýslu stendur afar vel og
hafa aldrei fleiri grunnskólanemendur dvalið í búðunum en einmitt í vetur.
11. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Þorlákshöfn um verslunar-
mannahelgina og er undirbúningur þar af fullum krafti. Margt fleira mætti
telja.
Skinfaxi óskar ungmennafélögum sem og landsmönnum öllum gleði-
legra jóla og farsældar á nýju ári.
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson
Ábyrgðarmaður:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFl
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ómar Bragi Stefánsson o.fl.
Umbrot/hönnun: Indígó
Prentun: Prentmet
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender
Ritnefnd: Anna R. Möller, Einar
Haraldsson, Birgir Gunnlaugsson
og Ester Jónsdóttir
Skrifstofa UMFf/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFl,
Laugavegi 170-172,105 Reykjavík,
sími: 568-2929,
netfang: umfi@umfi.is
heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFf:
Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki
Torfi Jóhannsson, svæðisfulltrúi,
með aðsetur á fsafirði
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi
og verkefnisstjóri forvarna
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa / kynningarfulltrúi
Jón M. Ivarson, söguritari
Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri
Stjórn UMFf:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, form.
Ásdís Helga Bjarnadóttir, varaform.
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri
Örn Guðnason, ritari
Hringur Hreinsson, meðstjórnandi
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi
Einar Haraldsson, meðstjórnandi
Varastjórn:
Eyrún H. Hlynsdóttir
Haraldur Þór Jóhannsson
JóhannTryggvason
Einar Jón Geirsson
Forsíðumynd:
Efst: Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFl og Ásdís Helga Bjarna-
dóttir, varaformaður.
Neðst til vinstri: Forseta Islands
afhent fyrsta eintakið af bókinni
Vormenn (slands.
Neðst til hægri: Brugðið á leik á
norrænu leiklistarnámskeiði í Noregi.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands ~J