Skinfaxi - 01.12.2007, Blaðsíða 8
Kvenréttindafélag íslands heiðraði nýkjörinn formann UMFÍ:
Eruut að zetula, uMjjUMi stetpuAM, áJu/eðwi doilakoð
Kvenréttindafélag fslands
heiðraði 19. nóvember Helgu
Guðrúnu Guðjónsdóttur ítilefni
þess að hún var á dögunum kjörin
fyrst kvenna til formennsku í
Ungmennafélagi íslands.
Svandís Ingimundardóttir, sem
sæti á í stjórn Kvenréttindafélags
íslands, sagði við þetta tækifæri að
tilefni þess að Helgu Guðrúnu var
veitt þessi viðurkenning væri sú
staðreynd að hún erfyrsta konan
til að gegna formennsku í Ung-
mennafélagi fslands.
„Það þykja okkur vera merk tíð-
indi því að það er ekki svo algengt
að konur veljist til forystu og þá
sérstaklega þegar við horfum til
fyrirtækjanna í landinu. Það er því
rík ástæða til að vekja athygli á
þessu því þetta eru um leið skila-
boð sem við erum senda ungu
stúlkunum, um að þeim séu allir
vegirfærir," sagði Svandís Ingi-
mundardóttir.
Svandís sagði það m.a. hlutverk
Kvenréttindafélagsins að draga
athyglina að svona atburðum þegar
þeir gerast, eins og þessu tilfelli þar
sem kona var kjörin formaður UMFÍ.
Hildur Helga Cisladóttir, Halldóra Traustadóttir, MargrétSteinarsdóttir og Svandís Ingimundardóttir frá Kvenréttinda-
félagi íslands eru hérmeð Helgu Guðrúnu Guðjónsdóttur sem heldur á blómvendinum. Með þeim á myndinni erAskur
Amenuvor, sonur Halldóru.
playrfiegame
“ww.nlainneBa,
Eiríkur Þorláksson frá menntamálaráðuneytinu, til vinstri á myndinni, flutti
ávarp við lok ráðstefnunnar. Hérsésthann á tali við Jens Sejer Andersen,
forsvarsmann Play The Game.
Forseti Islands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, flutti erindi á ráðstefnunni,
sem vakti mikla athygli.
Ráðstefnan Play The Game var haldin dag-
ana 28. október til 1. nóvember en hún var
einn liður í 100 ára afmæli UMFÍ. Ráðstefnan
þótti takast mjög vel en hana sóttu 260
erlendir íþróttafréttamenn og háskólafólk
frá 50 þjóðlöndum.
Play the Game, sem er eina óháða ráðstefn-
an um íþróttir í heiminum, var haldin á Grand
Hótel í Reykjavík. Á opnunarhátíðinni flutti m.a.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti (slands, erindi
sem vakti mikla athygli. Magnús Scheving sagði
frá uppbyggingu Latabæjarog Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, nýkjörinn formaður UMFf, ávarp-
aði ráðstefnuna.
Á ráðstefnunni voru hvorki fleiri né færri en
80 fyrirlesarar sem héldu erindi um ýmislegt
sem snýr að íþróttum. Rauði þráðurinn í ráð-
stefnunum fram að þessu hefur verið að taka
fyrir og kryfja ýmis áhugaverð mál í heimi íþrótt-
anna víðs vegar um heiminn, varpa Ijósi á
pólitísku hliðina á íþróttum sem er oft á tíðum
með ólíkindum, skoða lyfjamál, spillingarmál
auk þess sem ýmsir þekktir einstaklingar úr
heimi íþróttanna halda fyrirlestra.
Congress Reykjavík hafði veg og vanda af
undirbúningi ráðstefnunnar í samvinnu við for-
svarsmenn Play the Game, UMF( og Samtök
íþróttafréttamanna. Þetta var í fimmta sinn sem
PlayThe Game er haldin en sú fyrsta fór fram
1997. Þetta er hins vegar ífyrsta skipti sem hún
er haldin utan Danmerkur.
Erlendu gestirnir fóru meðal annars að Gull-
foss og Geysi og sögðu eftir hana að sú ferð
myndi aidrei renna þeim úr minni.
Heiðursverðlaun Play the Game að þessu
sinni fékk Sandro Donati frá Ítalíu en hann hefur
verið í fararbroddi þar í landi í að berjast gegn
lyfjamisnotkun í íþróttum.
8 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands