Skinfaxi - 01.12.2007, Page 10
Fréttir ur kreyjmyiuuu.
Ungmennafélagið
Tindastóll lOOára
UngmennafélagiðTindastóll var
stofnað á því herrans ári 1907, nánar
tiltekið þann 26, október, og því eru 100
ár liðin frá stofnun félagsins. Það voru
fjórir einstaklingar sem voru fremstir í flokki
þeirra er stofnuðu félagið á sínum tíma, þeir
Sigurður Björnsson, Þorbjörn Björnsson,
Pétur Jakobsson og Kristján Sigurðsson.
Á þessum 100árum hefur mikið vatn runnið til
sjávar og félagið breyst eins og allt samfélagið.
Þó eru enn sömu gildi í hávegum höfð og verða
vonandi um ókomna tíð.Tindastóll hefur svo
sannarlega ritað nafn sitt á spjöld sögunnar,
bæði hjá íþrótta- og ungmennafélagshreyfing-
unni, enda hefur starfið verið öflugt í áraraðir.
Horfum björtum augum
Ungmennafélagið Hvöt 100 ára:
Umf. Hvöt boðaði til 100 ára afmælishófs í
Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi laugar-
daginn 24. nóvember sl. Sveitungar og
velunnarar félagsins komu þar saman á
þessum merku tímótum í sögu féiagsins.
(UMFHVOTl Hvöt er elsta starfandi félagið innan
I -3*5*!*» I HSK, en félagið var stofnað 22. desem-
II (907 I ber 1907. Félagið var stofnað í þinghúsi
VV yJ hreppsins, sem þá var á Stóru-Borg, að
tilstuðlan Páls BjarnarsonarfráTraðar-
koti á Stokkseyri. Hann var þá kennari í
sveitinni og var hann jafnframt kosinn fyrsti
formaður félagsins. Aðrir í fyrstu stjórn félagsins
voru þeir Björgvin Magnússon frá Klaus-
turhólum sem var kosinn ritari og Jón Gunn-
laugsson frá Kiðjabergi sem gjaldkeri.
Hápunktur kvöldsins var gjöf frá sveitarfélag-
inu, sem var 1 milljón til ráðningar starfsmanns/
þjálfara ásamt því að vista bókhald og útvega
aðstöðu fyrir starfsmanninn. Þarna var„öldungn-
um" ærlega kippt inn í nútímann og í máli manna
var rætt um að festa þessa upphæð til framtíðar.
Guðmundur Jóhannesson, sem verið hefur
formaður Hvatar frá 1998, sagði í viðtali við Skin-
faxa að á þessum merku tímamótum horfi
til framtíðar
félagið björtum augum til framtíðar.„Það er ekki
annað hægt en með tilkomu nýja íþróttahússins
á Borg og sundlaugar opnuðust miklir mögu-
leikar. Keppnislega höfum við ekki haft okkur
mikið í frammi, en það er aldrei að vita hvað gerist
nú. Það eru reglulega æfingar í fótbolta og blaki
og svo horfum auðvitað til sundsins í náinni
framtíð," sagði Guðmundur.
Guðmundur sagðist verða var við mikinn
áhuga í sveitinni enda hefur öll aðstaða tekið
stakkaskiptum á síðustu misserum. Guðmundur
sagði að sparkvöllur hefði verið tekinn í notkun
á sl. hausti og væri hann mikið notaður af börn-
um og unglingum.„Við látum okkur dreyma um
nýjan íþróttavöll en sveitarfélagið hefur verið að
skoða þann möguleika. Það verður ekki annað
sagt en að það sé bjart yfir í sveitinni, áhugi
hvert sem litið er, og ekki ástæða til annars en
að vera bjartsýnn," sagði Guðmundur Jóhannes-
son.
10 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands