Skinfaxi - 01.12.2007, Side 11
Ný stjórn UMFÍ kosin á Þingvöllum
Ný stjórn Ungmennafélags fslands var kosin
á 45. Sambandsþingi UMFf sem fór fram
í Hótel Valhöll 20.-21. október sl. Við það
tækifæri var tekin mynd af stjórninni ásamt
framkvæmdastjóra.
Frá vinstri: Örn Guðnason, ritari, Ásdís Helga Bjarnadóttir, varaformaður, Jóhann Tryggvason, varastjórn,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir, varastjórn, Hringur Hreinsson, meðstjórnandi, Einar Haraldsson, meðstjórnandi,
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður, EinarJón Geirsson, varastjórn,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi, Haraldur Jóhannsson, varastjórn, og Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri.
InngangaIBR
íUMFÍvarfelld
Meðal þess, sem lá fyrir Sambandsþingi
UMFÍ á Þingvöllum, var umsókn íþrótta-
bandalags Reykjavíkur um inngöngu í
UMFÍ. Við afgreiðslu umsóknarinnar var
borin upp sérstök tillaga sem fól í sér að
umsókn ÍBR í UMFÍ var hafnað.
Tillagan hljóðaði svo:
45. Sambandsþing UMFÍ fagnar áhuga
ÍBR að taka þátt ístarfi ungmennafélaga.
Þingið telur þó ekki forsendur fyrir því að
ÍBR fái aðild að UMFÍ. Þingið felurstjórn
UMFi að taka upp viðræður við ÍSÍum
heildarskipulag ungmennafélaga og
íþróttahreyfingarinnar, þ.á m. skiptingu
lottóágóða.
Þessi tillaga var samþykkt með 47
atkvæðum gegn 45.
HSK hlaut hvatningarverðlaun UMFÍ
Á 45. Sambandsþingi UMFlá Þingvöllum var tilkynnt hvaða héraðssamband fengi hvatningarverðlaun
UMFÍ. Verðlaunin féllu i skaut HSK-manna fyrir framúrskarandi kynningarstarf. Gisli Páll Pálsson,
formaður HSK, og Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK, tóku við viðurkenningunni fyrir hönd
héraðssambandsins.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 1 1