Skinfaxi - 01.12.2007, Qupperneq 12
/ IwiWAsáhK hjá, IrOrz&kMUAWL á Betta&tö^iMVL:
Þau Helga G. Guðjónsdóttir, formaður UMFl, og Jón M. Ivarsson, söguritari, afhentu Forseta Islands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrsta eintak bókarinnar.
Saga ungmennafélagshreyfingarinnar í 100 ár
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta l'slands, var þann 29. nóvember afhent
fyrsta eintakið af bókinni Vormenn (slands við hátíðlega athöfn á Bessa-
stöðum. Ungmennafélag (slands er lOOára á þessu ári en það var stofnað
á Þingvöllum 2. ágúst 1907.
Jón M. ívarsson, sagnfræðingur, var fenginn til að rita aldarlanga sögu
samtakanna. Bókin er í stóru broti, rúmlega 700 siður og prýdd 800 Ijós-
myndum. Hún er í senn íþróttasaga og þjóðlífssaga í 100 ár. Sú saga er sam-
ofin sögu íslensku þjóðarinnar og speglar vel tíðarandann á hverjum tíma.
í bókinni er sagt frá íþróttum, skógrækt, leiklist, samkomuhaldi ásamt
mörgu fleiru sem ungmennafélagar hafa látið til sín taka. Landsmót UMFÍ
munu flestir þekkja sem stærstu íþróttahátíðir þjóðarinnar. Á seinni árum
hafa Unglingalandsmótin komið til sögunnar sem vímuefnalausar
fjölskylduhátíðirsem haldnareru árlega um verslunarmannahelgina.
Bókin segir ítarlega sögu þessara hátíða sem og sögu Þrastaskógar sem
spannar næstum heila öld.
Skrifað undir viljayfir-
lýsingu um byggingu
þjónustumiðstöðvar
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing á milli verktakafyrirtækisins (staks
og Ungmennafélags (slands um byggingu á fjölnotahúsi sem Ungmenna-
félagíslands mun reisa aðTryggvagötu 13 í Reykjavík. Einnig hefur verið
undirrituð viljayfirlýsing við Edduhótelin á (slandi varðandi rekstur á gisti-
rými sem m.a. er ætlað fjölskyldum. Húsið er fjölnotahús þar sem gert
er ráð fyrir fjölbreyttri íþrótta-, lista- og menningarstarfsemi, gistingu
m.a. fyrir fjölskyldufólk og þjónustumiðstöð fyrir ungmennafélagshreyf-
inguna á íslandi. Áætlað er að húsið verði tekið í notkun í maí árið 2009.
Stærð hússins er um 7.000 fermetrar. Það er félagshreyfingunni mikil
ánægja og heiður að borgaryfirvöld skyldu hafa treyst hreyfingunni til
að byggja þetta fjölnotahús á þessum sérstaka stað í miðborg Reykja-
víkur. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist fljótlega eftir áramótin
en öll undirbúningsvinna er á lokastigi. Þessar viljayfirlýsingar voru
undirritaðar í Reykjavík 17. október 2007 af fulltrúum Ungmennafélags
Islands, (staks og Edduhótela á Islandi.
Magnea Hjálmarsdóttir frá Edduhótelum, Björn B. Jónsson, í byggingar-
nefnd og fyrrverandi formaður UMFÍ, og Loftur Árnason, framkvæmda-
stjóri Istaks, handsala viljayfirlýsinguna.
12 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands