Skinfaxi - 01.12.2007, Page 30
/icý&nQve/és ^f//'cf /'ttirtcf '/ > /<//icjt f i t ^Xí/ijíc/í:
Margt nýtt kom fram
við ritun bókarinnar
Jón ívarsson, sagnfræðingur, ritaði sögu ungmenna-
félagshreyfingarinnar í 100 ár en bókin kom út um
síðustu mánaðamót. Fáir eru jafnkunnugir hreyfing-
unni og Jón en bókin er rúmlega 700 síður og vegur um
3,5 kg. Jón var spurður hvað hefði að hans mati staðið
upp úr við skrif bókarinnar.
„Það var geysilega margt sem maður taldi sig vita um söguna en það
var líka margt nýtt sem kom fram við skrif hennar. Ég var svolítið undrandi
þegar ég áttaði mig á því hversu langan tíma það tók UMF( að safna öllum
ungmennafélögunum undir merki sitt. Það var ekki fyrr en undir miðja
síðustu öld sem það gerðist en fram að því voru mörg ungmennafélög
utan UMFÍ. Það var ekki fyrr en eftir að íþróttalögin komu að þau fóru öll
undir merki UMFl. Þá fyrst fór hreyfingin að verða sterk og öflug en fram
að því hafði hún verið fremur landshlutabundin. Þetta var eitt af því sem
maður hafði ekki áttað sig á kannski fyrirfram. Ég vil einnig minnast á þá
miklu uppsveiflu sem verður þegar Flafsteinn Þorvaldsson og Sigurður
Geirdal taka við stjórninni en þá eflist starfið gífurlega. Það koma margir
nýir þættir inn, erlendu samskiptin blómstra en þau höfðu engin verið um
30 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags Islands