Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Page 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Page 4
byggja hafnargavðiim svo rammgeran og lang- an, að hans verði full not. Hvaða stefnu garð- urinn verður látinn taka hér eftir, geta verið skiptar skoðanir um. Að líkindum myndi reyna minna á garðinn, væri hann látinn stefna meira til austurs, hann er til lýta hlykkjóttur hvort sem er, og það standa út úr honum klappirnar að þarflausu, en öllum til óþurftar, sem annars gætu haft stubbsins not. Það verður ekki kom- izt hjá því að dýpka innan garðsins, hvaða stefnu sem framhaldið verður látið taka. Þær óbanpaframkvæmdir, sem þarna var byrjað á í sumar, eru beinlínis svik við hafnarmál Skag- strendinga. Þarna stendur til að eyða hundruð- um þúsunda til að fylla upp stór svæði af höfn- inni í stað þess að dýpka hana. Ég get ekki skilið að þessi bátadokkufors'mán, sem til stend- ur að byggja þarna, hefði ekki mátt bíða betri tíma. Þau margvíslega bættu skilyrði, sem þarna sköpuðust þorpsbúum með byggingu góðrar hafnar, mundi fljótlega fæða af sér báta- höfn, ef nauðsynlegt reyndist, sem ég dreg mjög í efa að til kæmi. Þessi grandi, eða fjandi, sem þarna er verið að glíma við, er víst framkvæmd- ur íyrir atbeina hafnarnefndar og ég held að hún hefði gott af því að ígrunda þessa ljóð- línu Þorsteins: ,,Þá leistu aftur vinur, — það var þín dauðasynd“. Það gæti þá hugsast að hún sæi sóma sínum bezt borgið með því að beiðast lausnar, og „betra er seint en aldrei“, segir máltækið. Það er annars torskilinn sam- setningur, sú hafnarnefnd, og ekki von að vel fari: afdalabóndi, framsóknarmangari og útlendingur. Ennfremur er, að fróðra manna sögn, enginn stafur til á fjárlögum, sem heim- ilað gat þetta hliðarhopp, og er það fullkomið rannsóknarefni, hvort þarna hefir ekki verið farið út fyrir það teygjanlega í fjárgreiðslum úr ríkissjóði og á hvern hátt því hefir verið fyrir komið. Ég hefi heyrt frá góðum heim- iidum, að þetta hafi verið í ráðist, gegn vilja vitamálastjóra. Þingmaður kjördæmisins er ekki hrifinn af þessu víxlspori, eða þeir af búend- um kauptúnsins, sem ég hefi átt tal við um þetta mál. Til þessara aðila skýt ég máli mínu og skora á þá að taka höndum saman til þess að hrinda verkinu áleiðis í.rétta átt. Ég læt svo útrætt um þetta að sinni, en eitt ber þeim að hafa hugfast, sem framhalds- fjárveitingu til þessarar hafnargerðar hafa með höndum, að þeir peningar, sem eytt hefir verið norður þar, verða aldrei endurgoldnir ríkissjóði, hvorki beint eða óbeint, verði ekki baldið áfram að fullgera verkið þannig, að öll síldveiðiskip og minni flutningaskip eigi þar öryggis að vænta. Steindór Árnason. 4 Hermenn Islands Heimurinn blikar af báli, böðlar með eldi og stáli eru á eilífu rjáli meö eitt og þaö sama í hug: Er óvinar tortíming tefur og tilgang á jöröunni hefur vilja þeir vinna á bug. íslenzka þjóðin er orðin ein þeirra er horfir á moröin, stórvelda styrjaldarkoröinn er stilltur á hérlenda menn. Harmfregn af hafsins átum oft hljómar í vorum sálum. Nú hljómar hún eitt sinn enn. „Jón Ólafsson“ er nú farinn, áhöfnin týnd í marinn. Skörulegur er skarinn, er skjól á % votri gröf. Hljótt er um byggðir og bæi er bætazt fórnir viö Ægi. — íslenzk gimsteinagjöf. Sjómenn um höfin halda hugpruöa liöiö valda veit aö hver úthafsins alda í iörum sér dauöann ber. Þó hopa þeir hvergi, en hugur heröizt, og þrek og dugur einkenna íslenzkan her. Ingólfur Kris tjánsson, frá Hausthúsum. MÓTBYR: Brunar há sunnan bára, byrstur Kári sig hristir. Geðleiður Grímur élja, gránaða ýfir báru. Her þessum móti heldur, háreistur knörr fer geystur, sinnir sízt þó rjúki, sæ hvíta drif yfir. G. E. V ÍKIN G U U

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.