Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Qupperneq 8
Þegar komið hefir verið auga á kafbát, en
ekki tekist að sökkva honum, var miskunnar-
laust reynt að rekja slóð hans neðansjávar,
með því að reyna að geta sér til hvaða leið
hann hefir valið sér, og vel vaktaður sá staður,
sem búist er við að hann komi aftur upp á
yfirborðið, þar eru alltaf einhverjar flugvélar
á lofti, og eru þær látnar leysa hvor aðra af
verðinum.
Á nóttunni var varpað niður blysum og sér-
stök leynitæki, sem flugvélarnar eru útbúnar
með, eru notuð til að hafa upp á kafbátunum.
Á hinn bóginn hefir andstæðingunum tekist
Breskur flugmaður að snæða „sandwichs" horfir undr-
andi er þýzkur kafbátur birtist snögglega á yfirborðinu.
að finna upp nýjar aðferðir sér til verndar.
Hinir nýju kafbátar geta stungið sér á bóla
kaf á minna en 30 sekundum.
Þegar kafbátur kemur upp á yfirborðið á
Biscayaflóa-svæðinu, eru undir eins fjórir menn
sendir upp í turninn og þar snúa þeir bökum
saman hver með sinn sjónauka, og skifta á
milli sín að hafa gætur á himinhvolfinu. Stund-
um hafa kafbátar stungið sér í ofboði sam-
kvæmt aðvörun frá þessum mönnum, og þeir
skildir eftir spriklandi í sjónum.
Ef engin ský eru á lofti, er það oft sem kaf-
báturinn sér flugvélina löngu áður en hún sér
hann. En hvort sem er, þá gefa þrjátíu sek-
undur flugmanninum ekki mikið svigrúm til
að komast í árásar-aðstöðu, ef til vill úr fimm
eða sex mílna fjarlægð.
En samt sem áður hefir sá ávinningur, sem
náðst hefir, í viðureignum flugvéla og kafbáta,
verið nægilegur til að koma Þjóðverjum til að
gera róttækar gagnráðstafanir.
Þeir urðu að grípa til þess að láta kafbáta
sína sigla undir flugvélavernd. Á því svæði,
sem helzt mátti búast við að brezku flugvél-
arnar færu um á leiðinni fram og til baka, urðu
þeir að hafa eltingarflugvélar á sveimi, til þessa
notuðu þeir hinar kraftmiklu orrustuflugvélar
sínar Me. 110.
Lengra til hafs beita þeir Junkers 88 og
Ai'odo sjóflugvélum. Þó þessar Arodo-flugvélar
séu fremur hægfleygar, láta þær sérstaklega
vel að stjórn og eru mjög vel vopnum búnar.
Þessar þýzku flugvélar hafa verið brezku
flugvélunum alvarlegt áhyggjuefni, og til að
vega á móti þeim hafa Beaufigthers flugvélar
verið sendar Sunderlandsbátunum og sprengju-
flugvélunum til styrktar. En það vantar til-
finnanlega langferða orrustuflugvélar til þess-
ara hluta, alveg eins og það vantar langferða-
sprengjuflugvélar .vopnum búnar.
Fyrir utan aðaltilganginn, sem er auðvitað
að koma kafbátunum fyrir kattarnef, hafa þess-
ar sífelldu árásir á kafbátana líka annað mark-
mio, en það er að reyna að draga kjarkinn úr
áhöfnum þeirra.
Með því að neyða þær til að vera í kafi mik-
inn hluta leiðarinnar fram og til baka, og með
því að láta kafbátsmenn aldrei fá stundarfrið,
til að jafna sig, þá verður þeim lífið í kafbát-
unum að hreinustu plágu.
Það er mjög nauðsynlegt fyrir kafbátana og
áhafnir þeirra að koma upp á yfirborðið á
nóttunni til að hlaða rafmagnsgeymana, og
endurnýja andrúmsloftið. Þegar kafbátarnir
eru á heimleið, eftir langa og harða útivist,
eru kafbátaáhafnirnar venjulega orðnar mjög
heimfúsar. Þá óska kafbátsforingjarnir einskis
frekar en mega halda áfram á fullri ferð ofan-
sjávar.
Kafbátsmenn, sem teknir hafa verið til
fanga, kvarta sárann yfir eltingarleiknum og
hvað það sé þreytandi að vera í sífelldu kafi,
það bæði dragi úr þeim kjarkinn og drepi við-
námsþrótt þeirra.
Eftirlifandi áhöfn af kafbát, sem landsett
var á vesturströnd Englands, var átakanlegt
dæmi um þetta. Áður en það tókst að eyði-
legga kafbát þeirra með djúpsprengju, höfðu
þeir verið neyddir til að vera í kafi í heilan
sólarhring með kafbátsforingjann liggjandi
höfuðlausann við stigann á uppganginum.
Daginn áður hafði kafbátur þessi lent í orr-
ustu við Whitley sprengjuflugvél, sem hafði eytt
öllum sprengjum sínum, og foringinn, sem
stjórnaði skyttunum um borð hjá sér, hafði
lent fyrir framan hlaupið á sinni eigin byssu.
Líkami hans hafði oltið niður um hleraopið
rétt í því að gert var aðvart um að önnur
flugvél, sem kallað hafði verið á, væri komin
til sögunnar, og var þá ekki til setu boðið,
heldur kafað undireins. í tuttugu og fjórar
8
V ÍKINGU R