Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Síða 27
ar innan loftskeytatækninnar. Áður hafði aðeins
verið um neistastöðvar að ræða, sem einungis gátu
annast „morse“-viðskipti, en hin nýju tæki Poul-
sens fólu í sér möguleika til að láta mannsröddina
sjálfa berast á öldum ljósvakans frá einum stað til
annars. Og draumurinn um það átti bráðlega eftir
að rætast.
Hinn 11. desember árið 1906 tókst eðlisfræðingn-
um Fessenden að „útvarpa" rödd sinni yfir 18 km.
vegalengd, og svipaðar tilraunir voru um sama leyti
gerðar af Poulsen sjálfum.
Þessi dagur — 11. desember — er því raunveru-
lega fæðingardagur útvarpsins.
Neistastöð frá 1920 (Telefunken). Stöðvar af þessari
gerð voru í mörgum íslenzkum skipum.
2. rakstraumsöryggi, 40 amp., 3. rofi fyrir rakstraum,
4. skiptari fyrir voltmæli, 5. voltmælir, 6. ræsir, 7.
breytilegt segulsviðsviðnám fyrir rakstraumshreyfil-
inn, 8. rakastraumshreyfill, 4 ha., 110 v., snúningshraði
1500, 10—12 öryggi, 13. riðstraumsrafall, 2 kw., 220
v., 500 rið, 15. breytilegt segulsviðsviðnám fyrir rið-
straumsrafalinn, 16. riðstraumsöryggi, 30 amp., 17.
rofi fyrir riðstrauminn, 18. amp.-mælir fyrir riðstraum-
inn, 50 amp, 20. lykill, 21. dafkefli í „primer“-rásinni,
22. spennir 220/8000 volt, 23. neistabraut, 24. þéttir
ca. 24 þús. cm., 25. spönukefli í sveiflurásinni (vorio-
meter), 26. amp.-mælir fyrir loftnetsrásina, 20 amp.,
28. loftnetsspóla (voriometer), 30. þéttar í loftnets-
rásinni, 33. viðtæki, 34. „primer“-spóla fyrir viðtækið,
42. heyrnartól.
Með uppgötvun þriggja skauta lampans, sem
gerð var af Ameríkumanninum Lee de Forrest, 1906
—07, varð gjörbylting á sviði loftskeytatækninnar.
Með þeirri uppgötvun var grundvöllurinn lagður að
tækni nútímans í þessum efnum — tækni, sem fyllt
hefur heiminn undrun og aðdáun.
VÍKINGUR
Þegar rætt er og ritað um þróun loftskeytatækn-
innar verður ekki hjá því komist að minnast jafn-
framt þess skerfs, sem tilraunamennirnir svonefndu
(amateurs) hafa lagt þar að mörkum.
Þeim hafði, árið 1912, verið markaður þröngur
bás, að því er talið var, á bylgjunum undir 200 m.,
eftir að öngþveitiðí ljósvakanum var orðið nær óvið-
ráðanlegt af þeirra völdum. Bylgjusviðið frá 300
til 600 m. var notað til viðskipta við skip, en önnur
viðskipti fóru að mestu fram á miklu hærri bylgju-
lengdum, 2000—25000 m. Lágu bylgjurnar voru
taldar ónothæfar til almennra viðskipta og tilrauna-
mönnunum því leyft að hagnýta sér þær ótakmark-
að. í fyrstu voru þeir mjög gramir þessum ráð-
stöfunum valdhafanna og litu á fyrirmælin sem eins
konar útlegðardóm frá þeim bylgjulengdum, sem
nothæfar væru til raunverulegra viðskipta.
En reynslan hefur orðið önnur. Með tilraunum
sínum einmitt þarna og á enn lægri bylgjusviðum
lögðu þeir grundvöllinn að þeim framförum, sem
markverðastar eru á sviði loftskeytatækninnar —
stuttbylgjuviðskiptum nútímans. í október 1924 bár-
ust þau stórtíðindi út um heiminn, að brezkum til-
raunamanni hefði tekizt að ná sambandi á 80 m.
bylgjulengd við Nýja Sjáland í Ástralíu, vegalengd
er svarar til helmings af ummáli jarðarinnar.
Talstöð frá 1910 (Telefunken).
Atvik þetta leiddi til þess að alvarlega var hafizt
handa um notkun stuttbylgjusviðsins til almennra
viðskipta. Og nú á tímum eru það þessar bylgjur,
sem brúa lengstu fjarlægðirnar og gefa glæsilegast-
ar vonir um að næsta takmarkinu verði náð, sem
mannsandinn hefur sett sér í þessum efnum —
sjónvarpinu.
27