Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Page 29
í réttinum er mættur sem vitni Steingrímur
Bjarnason, stýrimaður á Þórði Sveinssyni, 24 ára,
til heimilis í Bolungarvík, og var áminntur um
sannsögli. Skýrslan á rskj. nr. 1 var lesin upp fyrir
vitninu og sýnd því. Kannast vitnið við undirskrift
sína undir skýrslunni og kveður hana sanna, að því
er það bezt viti. Vitnið segir, að skipstjóri hafi sjálf-
ur verið á verði frá því að farið var frá Reykjavík
og til kl. 4 um daginn. Þá kvaðst vitnið hafa komið
á vörð til kl. 8 um kvöldið, en þá tók skipstjóri
aftur við verði. Vitnið segir, að skipstjóri hafi sagt
því að stýra þá stefnu, sem í skýrslunni greinir og
kveðst vera viss um, að henni hafi verið haldið
allan tímann. Vitnið segir, að skyggni hafi verið
gott þangað til fór að dimma. Ekki minnist það
þess, hvenær þeir höfðu seinast landsýn. Jökullinn
sást ekki, þegar vitnið fór niður. Vitnið kveðst
hafa verið búið að vera um hálfan mánuð á skip-
inu. Vitnið skýrir á sama hátt frá um dýptarmælir
og vegmælir og skipstjóri hafði gert, en segir að
áttaviti hafi verið þannig, að stýra hafi þurft einn
áttunda úr stryki norðar, en hann hafi sýnt, til
þess að vera á réttri útsettri stefnu.
Upplesið, játað rétt bókað. Framburður vitnisins
tekinn gildur sem staðfestur.
Þá er mættur sem vitni Hörður Friðbertsson, há-
seti á Þórði Sveinssyni, 20 ára, til heimilis á Súg-
andafirði. Áminntur um sannsögli.
Skýrslan á rskj. 1 var sýnd vitninu og lesin upp
fyrir vitninu, kannast það við undirskrift sína og
kveður hana rétta. Vitnið kveðst hafa verið á verði
með skipstjóranum, og því verið á verði alla sigl-
inguna nema rétt frá kl. 4 til 8 eftir hádegið. Vitnið
skýrir eins frá um skyggni og vitnið Steingrímur
Bjarnason, stýrimaður, og kveðst ekki hafa neinu
við skýrsluna að bæta, en hana telur það að öllu
leyti sanna og rétta.
Upplesið, játað rétt bókað. Frambuðurinn tekinn
gildur sem staðfestur.
í réttinum er mættur sem vitni Guðlaugur Guð-
mundsson, vélstjóri á Þórði Sveinssyni, 28 ára, til
heimilis á Súgandafirði, og var áminntur um sann-
sögli.
Vitnið hefur ekki skrifað undir skýrsluna á rskj.
nr. 1, en skjalið var lesið upp fyrir vitnið og kveð-
ur það það vera satt og rétt að því er vitnið viti.
Vitnið var á verði um leið og skipstjórinn. Kveður
vitnið vél skipsins hafa verið í fullkomnu lagi og
kveðst ekki vita um neina galla á siglingatækjum
skipsins aðra en þann, að stöðva hafi orðið skipið
til þess að nota bergmálsdýptarmælirinn.
Upplesið, játað rétt bókað. Framburður vitnis-
ins tekinn gildur sem staðfestur.
Sjóprófinu lokið.
Sjó- og verzlunardómi slitið.
Gunnar A. Pálsson ftr.
Geir Sigurðsson. Þorgrímur Sigurðsson.
Ósltar Halklórsson. Carl Finsen.
Torfi Tímóteusson. Ingólfur Jónsson.
íf
Eg hét Dröfn á yngri árum,
átti marga hrausta syni,
lék mér glatt á bárum bláum,
blöskraði ei, þótt stormur hvini.
Enn á ég marga úrvals-drengi,
enn er ég í fullri getu,
óska ég þeim lánist lengi,
að leggja út í fiskisetu.
Allt skal mulið undir stefni,
ég á að passa mína drengi,
loforð flest ég oftast efni,
enda mun ég fljóta lengi.
Ef að brestur ekki þorið
er eg' glíminn við þá bláu,
enda ka.nn é'g orðið sporið
á öldunum að dansa háu.
Kvæði þetta er gert af Hafliða Nikulássyni og
lætur hann bátinn mæla fyrir sjálfum sér. Björn-
inn 1, eins og segir í kvæðinu, hét Dröfn á yngri
árum, er nú orðinn 26 ára gamall og alla tíð ver-
ið hin mesta happafleyta, svo að allir sem á skip-
inu hafa verið, hafa tekið hinu mesta ástfóstri við
það.
Rétta útskrift staðfestir.
Skrifstofu lögmannsins í Reykjavík 4. jan. 1942.
Kr. Kristjánsson, settur.
V.b. Þórður Sveinsson var byggður í Noregi árið
1938, en keyptur hingað til lands árið 1941. Skipið
hét áður San Toay og var upprunalega leigt hing-
að til ísfiskiflutninga. Það var 111 rúmlestir brúttó
að stærð og eigendur þess Sameignarfélagið Jarl-
inn í Kothúsum í Garði, framkvæmdastjóri Óskar
Halldórsson útgerðarmaður.
V I KlNGLl R
29