Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Blaðsíða 31
M Asgeir Pétursson, útgerðarmaður látirm Ásgeir Pétursson, hinn merki norðlenzki út- gerðarmaður, andaðist hér í bænum 5. desem- ber s. 1., 67 ára að aldri. Með honum er í val- inn fallinn einhver stórbrotnasti athafnamað- ur, sem vér fslendingar höfum eignast á þess- ari öld. Hvað snertir margvíslegar framkvæmdir Ás- geirs, höfðinglegan yfirbrag og allan skör- ungsskap, má helst líkja honum við nafna hans, Ásgeir G. Ásgeirsson, brautryðjandann í sjáv- arútvegsmálum á Vestfjörðum og sem tilheyrði kynslóðinni á undan. Ásgeir Pjetursson var og brautryðjandi síns tíma í sjávarútvegsmálum, hvað síldveiðar snertir. Þótt síldin hafi vaðið hér við land frá ómunatíð, og verið talin einhver haldbezta og lostætasta fæða allra tíma, þá höfðu landsmenn annaðhvort ekki árætt það, eða komið sér að því, að hagnýta sér þessa afbragðsvöru á er- lendum markaði að neinu ráði, fyr en hann braust út í því að salta niður síld og senda út til reynslu. Auðvitað voru útlendingarnir þá búnir að koma auga á þessa auðsuppsprettu og voru farnir að teygja arma sína í síldaráttina, en Ásgeir sá strax möguleikana sem þarna lágu fyrir landsins eigin sonu. Þetta var dálítið eftir síðustu aldamót Síld- in var þá spakari og nærgöngulli, en hún er nú og óð inn um alla firði. Þá var það ekki sjald- gæft, að sjá hafsíld vaða inn á Akureyrarpolli. Menn voru þá farnir að veiða síldina í land- nætur, svokallaða lása. Nótin var ekki snurpuð, heldur varð hún að ná í botn og þannig var henni læst í kringum síldina. Síldina var svo hægt að geyma lifandi í lásnum um lengri tíma, og sækja í hann það sem þurfti eftir hendinni, meðan síldin entist. Slík veiðiaðferð á sér stað sumstaðar, sérstaklega þegar síld er veidd til beitu. Sú reynsla, sem Ásgeir fékk af þessari fyrstu tilraun sinni til síldarsölu, vai’ð til þess, að hann helgaði sig þessum avinnuvegi upp frá því. Lengi vel fyrst framan af, var ekki að ræða um annan markað en á norðurlöndum, og var Ásgeir lengstum stærsti útflytjandi íslenzkrar síldar, og mun hann alla tíð hafa notið óskorð- aðs traust þeirra, sem hann átti viðskipti við. Þegar íslendingar byrjuðu að flytja út létt- saltaða síld, sá Ásgeir strax hversu mikið skil- yrði það var, að þessi vara gæti að öllum frá- gangi verið sambærileg við hliðstæða vöru, sem hinir erlendu keppinautar höfðu á boðstólum. Hann varð því fyrstur til að taka upp rétta verkun á Matjes-síld og átti fyrstu síldarsend- inguna, sem var það vel verkuð, að hægt var á erlendum markaði að sýna kaupendunum í báða enda tunnanna, án þess að þurfa að blygðast sín fyrir fráganginn. Og glaður var Ásgeir þegar hann fékk skeyti um að þessi síld hefði selst hæzta verði á markaðnum í Hamborg og fyrirhöfnin þannig borgað sig. Saltendur höfðu þá fyrir nokkru verið byrj- aðir að verka léttsaltaða síld, sem þeir kölluðu þessu nafni, og hafði verið vel þegin á nýja markaði vegna stærðar sinnar og gæða, en skorti þó mikið að verkun hennar og frágangur væri sambærilegur við erlenda Matjessíld er þar var fyrir. Einnig komu fram miklar skemd- ir á þessari síld, vegna þess að landsmenn höfðu þá ekki þekkingu á að fara með svo viðkvæma vöru. En með aukinni þekkingu og fullkom- inni vandvirkni var hin léttsaltaða síld gerð að dýrmætri útflutningsvöru, með nýjum og margvíslegum framtíðarmöguleikum. Þegar hraðfrystihúsin komu til sögunnar, réðist Ásgeir fljótt í að reisa frystihús til að frysta síld til beitu, og mikill er sá þorskur, sem veiðst hefir á beitu frá Ásgeiri, bæði sunn- anlands og norðan. Fyrir utan síldarverzlunina rak hann um- fangsmikla útgerð. Eignaðist hann mörg skip um dagana og sum þeirra stór. Þegar lítið var um skipakost, og erfitt um aðflutninga til lands- ins í fyrri heimsstyrjöld, keypti hann gufu- skipið Kristján X og hafði í förum hingað. Skip þetta mun þó ekki hafa verið skrásett innanlands. Síðar eignaðist hann annað haf- skip, Nonna ,,stóra“. Hann átti og togarann VlKINGUR 31

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.