Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1944, Page 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1944, Page 4
sem líklegt var að sjór gæti komist niður um og komu síðan fyrir líflínum milli brúar og masturs, einnig voru líflínur strengdar á milli bátadekks og vanta, því nú skýldu háu skjól- borðin ekki lengur. Að þessu loknu komu þeir inn í stýrishúsið aftur og var nú ekki annað fyrir hendi en að láta fara svo vel um sig, sem föng voru á, og verja skipið fyrir áföllum. Veðurofsinn var orðinn afskaplegur, 11 til 12 vindstig og svo þungur að ef maður rak hausinn út um glugga átti maður erfitt með andardrátt, sér- staklega þó í hryðjunum. Á þessu gekk um nóttina, vaktir héldust óbreyttar. Undir morguninn fór að verða dálít- ið lengra á milli hryðjanna, en veðurhæðin hélst hin sama. Þegar bjart var orðið var sem yfir brimgarð að sjá, og rokið tætti svo sjó- inn að hann var sem mjöll ryki. Kl. um tíu á fimtudagsmorgun kom mikill sjór yfir skip- ið, sleit hann stjórnborðsbátinn lausan og hvolfdi honum inn að stýrishúsinu þannig, að hann lá skorðaður á rönd milli stýrishússins og stólanna, sem hann áður sat í, reynt var að koma honum á réttan stað aftur, en reyndist ógerlegt að hreyfa hann, svo fast var hann klemmdur þarna niður og var því bundinn þar sem hann var kominn. Upp úr þessu var hægt að merkja linun á veðrinu. Um hádegi voru ekki orðin nema 9 til 10 vindstig en sjór var ennþá mikill. Kl. 14 var farið að skarða það mikið í sjóana að ég taldi reynandi að gera tilraun til að fara af stað aftur. Sett var á fulla ferð og þrætt milli stærstu sjóanna, gekk það ágætlega, því sjór- inn var svo mikill og þykkur og brotin frem- ur regluleg eftir því, sem það nær til um út- hafssjó, og sáust langt til. Vindur fór nú óð- um minkandi og fór niður í 4 til 5 vindstig; hélst þetta veður til miðnættis, lyngdi þá alveg um stund og vorum við farnir að búast við al- vöru góðviðri. En Adam var ekki lengi í Paradís, eins og þar stendur; brátt fór að kula af suðvestri, með regnskúrum, færðist hann heldur í aukana jafnframt því, sem hann gekk vestar á og kólnaði. Klukkan 3 á föstudagsmorgun var komið ofsarok VNV og illfær sjór. Var skip- inu þá snúið upp í vind og sjó og vegmælir tek- inn, sýndi hann þá að farnar höfðu verið um 110.0 sjómílur í viðbót, hægt var á vélinni, öllu hagað til eins og á fyrri driftinni. Um nóttina var tunglskin öðru hvoru, élin voru ekki heldur eins dimm eins og í fyrra veðrinu, og sást því vel til, en samt var ekki hægt að verja skipið algjörlega fyrir áföllum, enda fór nú kössunum í göngunum óðum fækkandi og 236 og lagðist það að mun fram og tók drjúgum framan yfir. 1 birtingu um morguninn feng- um við marga sjói yfir skipið, enda var nú veðurofsinn í algleymingi. 1 einum sjónum hreinsuðust allir kassarnir úr stjórnborðsgang- inum, þá hentist og báturinn upp í stólana, þar sem hann áður var, aftari ,,davíðan“ hafði skuttlast upp úr stétt þeirri er hún stendur í. Einnig brotnaði sleðinn undan flekanum og féll hann niður á þilfarið, en vegna þess hve flekinn var vel bundinn, þá hékk hann innan- borðs. Veðurofsi þessi hélst þar til um klukk- an 16 um kvöldið og mátti varla á milli sjá hvor hefði betur, bátur eða sjór. Klukkan 18 fór að draga úr veðrinu og jafnframt minkaði sjórinn, svo að kl. 19.30 var hægt að fara af stað aftur, farið var með hægri ferð fyrsta klukkutímann en síðan smá- hert á eftir því sem skánaði í sjóinn, og kl. 22 var sett á fulla ferð og gekk þá vel, því að vindur var hagstæður, 6—8 vindstig, tunglið var komið upp og var því bjart, enda orðið langt á milli éljanna. Var nú hafist handa um að iagfæra á- skipinu, var ljótt um að lítast hvar sem litið var, og höfðu strákarnir við orð að líkast væri sem við hefðum lent í strandi, og því ekki sem bestu. Tapast höfðu fyrir borð um 220 kassar af fiski, annar báturinn, skjólborðin beggja meg- in, sá báturinn sem eftir var, svo brotinn að hann var ósjófær, þilfarið sprungið upp á tveim stöðum, en ekki samt svo að mikið læki um það. Þá var og víða „slegið úr“ þilfarinu, var það þétt eftir föngum með feiti, einkum lak niður í eldhúsið og búrið, enda mátti sjá að þar höfðu flestir sjóarnir komið niður á þilfarið. Mest allur matur hafði skemst af sjó, og var lítið til matar það sem eftir var ferð- arinnar annað en fiskur og saltkjöt, kaffi átt- um við þó óskemt og lítilsháttar af sykri. — Nú var eftir að vita hvað rétt yrði komið að landi, eins og hálfs sólarhrings drift i ofsa- veðri, þó svo að skipinu væri haldið upp í veð- ur og sjó, hláut að hafa fært skipið eitthvað afvega. Stefnunni var því breytt um tvö stryk frá hinni upphaflegu stefnu og stýrt beint suð- ur. Eftir því sem vegmælirinn sýndi þegar lagt. var til drifs í síðara storminum áttum við eftir ófarnar 242 sjómílur að St. Kilda. Á sunnudag um hádegi sást austasta eyjan við St. Kilda, beint fram undan, höfðum við þó komið um 15 sjómílum austar en venjulega er siglt. Upp frá þessu gekk allt vel, veðurhæðin hélst alla leiðina, 5—6 stig, og þótti okkur það blíðviðri hjá því sem á undan var gengið. — VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.