Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1944, Qupperneq 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1944, Qupperneq 22
ekki ætlast til þess að vér sendum yður áætlanir sem ný ákvörðun framgjalda yrði byggð á. Ef vér gæfum nú upp tölur viðvíkjandi afkomu félagsins á yfirstand- andi ári, sem vér teldum sem næst raun- verulegar, en svo kæmu reikningar fé- lagsins út á miðju næsta ári og sýndu þá aðrar niðurstöðutölur en þær, er vér hefðum áður gefið upp, eða áætlað sem nærri sanni, mætti líta þannig á, að vér hefðum gert slíka áætlun í blekkingar- skyni. Slíkt viljum vér ekki á nokkurn hátt eiga á hættu, og heldur láta hjá líða að gefa upp slíkar tölur. Það hefur einnig komið fram á opinber- um vettvangi á síðari tímum að mikil á- hætta fylgir því fyrir atvinnufyrirtæki hér á landi að gefa frá sér skýrslur og áætl- anir, þar sem ekki beinlínis getúr legið fyrir lögfull sönnun“. Jafnframt er í þessu bréfi voru, dags. 8. des. f. á., tekið fram að þareð Viðskiptaráðið hafi farið svo að, eins og að framan er lýst, gagnvart upplýsingum frá félaginu í maí f. á., og byggt á „öðrum upplýsingum, er aflað var sérstaklega", en ekki á áætlunum og skýrslum vorum, þá telji félagið þýðingarlítið að láta ráðinu í té upplýsingar um málefni félagsins. En þrátt fyrir það að málið lá þannig fyrir segist Viðskiptaráðið, í greinargerð sinni, hafa búist við nýjum upplýsingum frá félagi voru og segir að félaginu hafi hlotið ,,að hafa verið orðin Ijós afkoma ársins 1943 í aðalatriðum“ þegar fyrgreint bréf var skrifað 8. des. síð- astliðinn. Jafnframt segir þó Viðskiptaráðið að það hafi ekki látið löggiltan endurskoðenda, eða annan trúnaðarmann „sækja umbeðnar upp- lýsingar í bækur“ félagsins — meðfram vegna þess að „myndi slík rannsókn hafa orðið ýms- um erfiðleikum bundin, meðal annars vegna þess, að nokkur liluti reikningshalds fer fram á skrifstofu félagsins í New York“. Virðist ekki vera gott samræmi í því að átelja félagið fyrir að leyna upplýsingum, sem ekki má búast við að löggiltur endurskoðandi geti náð vegna þess að félagið hafi ekki upplýsingarnar. Ennfremur segir Viðskiptaráðið í greinar- gerð sinni að „þær breytingar, sem lang mestu munu hafa valdið um hinn mikla óeðlilega ágóða 1943 urðu mjög seint á árinu“. Samt treystir Viðskiptaráðið sér til þess að saka félag vort um vísvitandi launung á þessum ágóða þegar bréfið var skrifað 8. des. síðastl., þó það jafnframt, eins og að ofan segir, skýri frá því að nokkur hluti reikningshaldsins væri í New York og því augljóst að ekki var hægt á þeim tíma að vita um ágóða, sem varð vegna breytinga, er „urðu mjög seint á árinu“. Þetta dæmir sig vitanlega sjálft. Frh. í næsta blaði. Sví þjóöarbátamÍT í framhaldi a ftilkynningu atvinnum.ráðu- neytisins frá 11. maí síðastl., um smíði fiskiskipa i Svíþjóð, vill ráðuneytið gefa almenningi eftir- farandi upplýsingar um þetta mál. Sendiráð fslands í Stokkhólmi hefir undan- farna mánuði starfað að öflun fjölda tilboða frá sænskum skipasmíðastöðvum í smíði téðra fiskiskipa, svo og tilboða í aðalvélar og hjálpar- vélar. Fyrir nokkrum- dögum hafa tilboð borist í þá 45 báta, sem nú er leyfi fyrir að byggðir verði. Fiskifélag íslands hefur haft tilboð þessi til athugunar og er það álit þess, að tilboð Föreningen Sveriges mindre Varv í Gautaborg sé lang hagkvæmast í smíði bátanna, og hag- kvæmasta vélatilboðið sé frá A/b. Atlas Dissel í Stokkhólmi. Verð skipa og véla verður ca. í sænskum krónum sem hér segir: 50 rúml. bátar: Skipsskrokkar með tilheyrandi kr. 145.000.00. Aðalvél og hjálparvél kr. 67.000.00. 80 rúml. bátar: Skipsskrokkar með tilheyrandi kr. 193.000.00. Aðalvél og hjálparvél kr. 73.000.00. Við þessa kostnaðarliði bætist ca. 5% til þess að standa straum af eftirliti með smíði og ann- ar óhjákvæmilegur kostnaður. Framangreint skipasmíðasamband hefur skuldbundið sig til að afhenda alla bátana 45 að tölu innan 12 mánaða frá undirskrift samn- ings, en afgreiðslutími véla verður allt að 10 mánuðir. I þessu sambandi vill ráðuneytið láta þess getið, að gerðar hafa verið ítarlegar tilraunir til þess að fá togara smíðaða í Englandi og Sví- þjóð. Enn sem komið er hafa þessar tilraunir ekki borið árangur, en þeim verður haldið áfram. Lækkað um einn eyri! Hinn 4. ágúst s.l. lagði stjórn Síldarverksmiðja ríkisins til við atvinnumálaráðherra, að verð á síld- armjöli innanlands yrði ákveðið kr. 52,20 pr. sekk, í stað kr. 51,15 í fyrra. Eftir þóf milli stjórnar verksmiðjanna og ráðherra í nærri þrjár vikur, ákvað atvinnumálaráðherra loks að verðið skyldi verða kr. 52,19 eða einum eyri lægra en verksmiðju- stjórnin lagði til. 254 VtKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.