Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1945, Síða 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1945, Síða 1
SJÓMANNABLAÐIÐ UIKIH6UR ÚTGEFANDl: FARMANNA- OG FIS KIM AN N AS A M B A N D ÍSLANDS VILórg. 5. tbl. Reykjavík, mai 1945 Asgeir Sigur'Ssson: Friður í Dagana 29. apríl—8. maí voru mikil tíðindi og góð að berast. Heimurinn stóð á öndinni, af eftirvæntingu. Var það satt, var loksins hinn langþráði friður að verða veruleiki. Er vopnahléð hafði verið samið í Evrópu og samningar um skilyrðislausa uppgjöf Þjóðverja tilkynntir, önduðu menn léttara. Loksins höfðu vonir manna um frið orðið að veruleika. Allir friðelskandi menn hljóta að gleðjast af heilum hug. Máske á nokkurs konar hreinsun eftir hin löngu og grimmu „Ragnarök“ enn eftir að fara fram, til sefjunar þeim, er ekki hafa fengið sig fullsadda af mannvígum. Slíkt eftirlátum við fslendingar öðrum þjóðum, en snúum okkur að hinum raunverulegu frelsis- og framfaramálum þjóðarinnar. Það, sem allar þjóðir, er raunverulega hugsa um frið og framfarir sem höfuðtakmark lífsins, gjöra nú, er að sjálfsögðu, að auka og treysta á allan veg öryggi og velgengni fólksins sem í viðkomandi landi býr. Hinni ægilegustu skálmöld er að ljúka. Nú þurfa allir íslendingar að sýna til hvers þeir duga. Framfarir á öllum sviðum, örar og mark- vissar, þurfa að vera ákvörðun allra. Hið unga lýðveldi þarfnast þess, hver vinnufær maður og Evrópu kona verða að gjöra skyldu sína. Sjálfstæði án markviss starfs og sameiginlegs, verður hjal um óorðna hluti. Sundrung og flokkadrættir valda miklum töfum og geta valdið stór slysum, fyrir hið unga lýðveldi. Já, við trúum því, að friður sé að komast á í álfunni, og vonum að hann verði tryggur um langan tíma. En friður er ekki ávalt hið sama og hvíld, og því þarf nú að hefjast handa, um framfarastarfið, sem ætti að verða mun léttara, ef friðurinn helst. Við, sem höfum barizt vopnlausir í aldarað- ir fyrir lífinu og endurheimt frelsisins, við fögnum því af heilum hug, að þjóðirnar slíðra sverðin. Við samgleðjumst bræðraþjóðunum á Norðurlöndum af heilum hug, sem á ný hafa heimt frelsið eftir 5 ára áþján. Við væntum þess að þær sýni oss fullkominn skilning á okkar rétti til þess að vera frjálsir menn í okkar landi. Sagan hefur fært okkur heim sanninn um það, liver vá er fyrir dyrum, þegar sundrung og ófriður er í landinu. Þess vegna metum við að verðleikum frelsið og friðinn. Við fögnum því af heilum hug og horfum gunnreifir til tíma mikilla framfara og aukins þroska með þjóð vorri. VÍKINGUR 105

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.