Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1945, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1945, Blaðsíða 10
KÚTTER BJÖRGVIN Það voru skip af þessu tagi, sem ruddu veginn að fjárhagslegu sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar. tímabil íslerizku þjóðarinnar. Þegar hann var í heiminn borinn, á sjöunda tug síðustu aldar, voru Islendingar miðaldaþjóð í hugsun og at- vinnuháttum. Á þessu ári, 1945, er hann varð áttræður, hafa þeir tekið tæknina í þjónustu sína á flestum sviðum, og stórhugur þjóðarinnar er slíkur, að mörgum þykir nóg um. Ellert tók að stunda sjó frá Njarðvíkum þegar hann var innan við fermingu. Þá reri hann nokkrar ferðir á hverju hausti alla leið inn í Hvalfjarðarbotn til að sækja krækling í beitu fyrir vertíðina, því að um aðra beitu var tæpast að ræða. Sjóleiðin frá Njarðvíkum inn í botn á Hvalfirði er nálægt 40 sjómílum, eða áttatíu sjómílur fram og til baka. Þegar komið var með kræklinginn, var hann settur í fjöru heima við og tekið til hans jafnóðum og á þurfti að halda fyrir hvern fiskiróður. Frá Njarðvíkum stundaði Ellert sjóinn að mestu fram undir tvítugt, á útvegi fósturföður sins. Þá var hann nokkur sumur á Seyðisfirði. Útræði var þar langt, svo að hver róður tók 16—18 klukkustundir. Allan þann tíma sátu þeir undir árum, sem voru í andófi. Seinasta sumarið, sem hann var þar, var fjörðurinn full- ur af ís allan júnímánuð og langt fram í júlí. Þá var tæpast um sjósókn að ræða, en reynt var að þræða milli jakanna, stundum til að afla í soðið. Lítið var orðið eftir af nauðsynjum þegar skip kom loks inn fjörðinn, en það var í ágústmánuði. Eftir þetta úthald átti hann 100 krónur. Auk þess átti hann inni 60 krónur hjá Þórði Thor- oddsen, lækni, þar sem hann hafði verið vinnu- maðui’, og var það árskaup. Með þessar 160 krónur lagði hann inn á stýrimannaskóla Markúsar Bjarnasonar, og tók 114 þaðan burtfararpróf vorið 1889. Markús kenndi námsgreinar allar sjálfur, annað en dönsku. Kennslan var ókeypis og auk þess nokkrar bæk- ur á dönsku, sem nemendurnir urðu að notast •við, hvort sem þeir kunnu nokkra dönsku eða enga. Með Ellert útskrifuðust 3 aðrir nemend- ur, þeir Magnús Magnússon, er síðar varð kenn- ari við stýrimannaskólann, Marteinn Teitsson og Finnur Finnsson. Þótt lítið hafi Ellert átt f jármuna þegar nám- ið hófst, skuldaði hann engum neitt eftir þessa tveggja vetra skólavist. Réðst hann fljótlega í skiprúm að náminu loknu, fyrst háseti á 30 rúm- lesta skonnortu, er Seltirningar áttu og hét Agnes. Síðar réðst hann háseti á kútter Mar- gréti, en hana átti Geir Zoega. Hún var fyrsti kutterinn, sem hingað kom, 80 rúmlestir og þótti þá geysilegt skip. Ellert fór fyrstu ferð sína til útlanda á því skipi, og var ferðinni heitið til Spánar með fisk, sem var sumarafli skipsins. Það þótti mikið ævintýralegt ferðalag í þá daga. Skipstjóri var Guðmundur Kristjánsson, en stýrimaður var danskur. Fyrst var farið til Skotlands til að fá fyrirmæli um það, til hvaða hafnar á Spáni fisk- urinn átti að fara, því að ekki var hægt að senda skeyti. Ferðin frá Reykjavík til Skotlands tók sextán daga. Fyrstu fimm sólarhringarnir fóru í það, að komast fyrir Reykjanes, — í þá daga þóttu áhöld um hvort æskilegra væri, afspyrnurok eða logn. Þegar til Skotlands kom, fékk skip- stjóri fyrirmæli um að lialda með farminn til Bilbao. Þótti skipshöfninni það skemmra ferða- lag en vonir stóðu til, því að mikið af íslenzk- um fiski var flutt til Barcelona. Frá Bilbao fór kútter Margrét til franskrar VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.