Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Blaðsíða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Blaðsíða 11
Þórður Jónsson, Látrum Skemmtileg sjóferð Fyrri grein Árið 1935, að lokinni vetrar vertíð á togaranum Leikni frá Patreksfirði, komum við Birgir Thorodd- sen, sem nú er fyrsti stýrimaður á Gullfossi, heim að Vatnsdal. Ég átti þar þá heima, hjá tengdaforeldrum mínum, Ólínu og Ólafi Thoroddsen, foreldrum Birgis. Þórður Jónsson, Látrum. Eftir að hafa verið heima í hálfan mánuð, vorum við búnir að gleyma sjóvolki vetrarins, og langaði aftur að sækja sjóinn, eða eitthvað annað að vinna. Ein opinn vélbátur var til í Vatnsdal og réri Ólafur honum til fiskjar með öðrum sonum sínum er heima voru. Var því lítið fyrir okkur Birgi að starfa þar heima, er vinna gæti talizt, fyrir stráka á bezta aldri, og það um hábjargræðistímann. Það var einn sólríkan morgun, er við lágum úti á hlaðvarpanum í Vatnsdal, og létum sólina verma okkur. Við bárum saman mun- inn á því að liggja svona, á grænum bala í sól og sumri, eða vera á vetrarvertíð á togara í stormi, frosti og stórsjó, með minnst 16 stunda vinnu á sólarhring. Víst var munurinn mikill, tvær andstæður. En við hefðum fúsir vilja skipta, þar sem okkur vantaði fyrst og fremst peninga. En um slíkt var ekki að ræða, togarar myndu ekki fara aftur á veiðar fyrr en síðla sumars. Eitthvað urðum við að gera þangað til, við vorum búnir að fá nóg af iðjuleysi í bili. Þetta var á þeim árum, er færri fengu pláss á togaraflotanum en vildu, enda var það þá einhver arðmesta atvinna, er völ var á. En nú er öldin önnur. Það stóð til að ég smíðaði brú á Hafnarvaðal í Örgilsá. Þetta sumar hafði ég hug á að fá Birgir með mér í það verk, því hann var afkasta maður mikill til allra verka. Einnig vorum við góðir félagar, þótt við stríddum stundum hver öðrum af algjöru miskunarleysi. En þetta með brúarsmíðina var enn í óvissu. Við vorum sammála um að iðjuleysi okkar yrði að fá skjótan endi, og helst þennan dag. Og meðan við veltum okkur þarna í sólskininu, flugumst á og boxuðum, fundum við lausnina. Erlendur á Látrum bjó alltaf vel af bátum, svo sem öðrum hlutum, til hans ætluðum við að leita með bátslán, og biðja Ólaf að flytja okkur að Látrum er hann réri róður næstu nótt. Með þessa ákvörðun gengum við sporléttir inn í bæinn, þar sem hún skyldi kunngjörð kvenþjóðinni. Úr búr- dyrum fluttum við boðskap okkar, flóðmælskir að okk- ur fannst. Við lofuðum í fyrstu för okkar, eggjum úr Látrabjargi, steinbít og lúðu af Látraröst, og hangnu sauðarkjöti frá Látrum. En boðskapur okkar var ekki tekinn alvarlega af áheyrendum, en við hugðumst efna þess betur. Kl. 4 næstu nótt hélt áhöfn Dvalíns, en svo hét bát- ur Ólafs, niður í vörina í Vatnsdal, ásamt tveimur far- þegum. Þeir siðast töldu voru heldur syf julegir, þar sem þeir í næturkyrrðinni röltu hlið við hlið á eftir hinum, og töluðu fátt. Undir hendinni báru þeir nestispakka og þessa sjálfsögðu og ómissandi förunauta fiskimanns- ins, stakkinn og sjóhattinn. Þegar niður í vörina kom, rauf fjöldi gargandi máfa hina dásamlegu vornætur- kyrrð. Þeir höfðu verið að gæða sér á innyflum þess fiskjar er aflaðist daginn áður, og voru okkur reiðir fyrir ónæðið. Báturinn var nú settur til sjávar og þar með allir vel vaknaðir. Er báturinn var kominn á flot tók Ólafur stýrið og renndi fyrir, sonur hans Ólafur, fór að fást við mótorinn, sem tók syf julega atlotum hans fyrst í stað. Brátt tók þó mótorinn að anda hressilega með hávaða og gauragangi, svo sem háttur Skandía- mótors er. Gnoðin tók að hreyfast og brátt var hún komin á fulla ferð. Ólafur sat við stjórnvölinn, með svip og virðuleik skipstjórans frá skútuöldinni. Hann signdi sig, tók ofan höfuðfatið og við hinir gerðum slíkt hið sama. Svo las hver sína sjóferðabæn í hljóði. Er henni var lokið, voru höfuðfötin sett á sinn stað. Þessi siður er svo gamall hér að enginn veit aldur hans, og enn er hann í hávegum hafður hjá þeim er V í K I N □ U R 143

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.