Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Blaðsíða 26
7/5. Eldur kemur upp í verksmiðju Fiskimjöls og Lýsis h.f. í Grinda- vík. Munu vélar verksmiðjunnar hafa eyðilagzt að mestu. — Samvinnu- tryggingar efna til hugmyndasam- keppni um úrbætur í umferðamál- um. Tvenn verðlaun verða veitt, kr. 7.000,00 og kr. 3.000,00. Tjón af völd- um bifreiða nema nú 20 millj. króna á ári. • 12/5. SÍS og Oliufélagið hafa ný- Iega gert samning við norskt skipa- félag um kaup á stóru olíuflutninga- skipi. Skipið er 16.730 lestir dw. að stærð og smíðað í Þýzkalandi 1952. — Sameinuðu þjóðirnar munu á næsta ári bjóða 20 ungum konum og körlum til námsdvalar í aðalstöðv- unum í New York. • 14/5. Stýrimannaskólanum var sagt upp 11. maí sJ. að viðstöddum nokkrum af eldri nemendum skólans. 50 nemendur brautskráðust úr skól- anum, þar af 21 farmaður, en alls voru nemendur í vetur 124. • 16/5. Ungur fslendingur, Guð- mundur Guðmundsson, hélt nýlega málverkasýningu í Milanó á Italíu, og mun það vera fyrsta sjálfstæð sýning islenzks listamanns þar í landi. — Stofnað hefur verið nýtt togarafé- Iag g Isafirði, og nefnist það Hafra- fell h.f. Stofnendur eru nokkur fyr- irtæki og einstaklingar. • 18/5. Ung íslenzk kona, frú Ás- gerður E. Búadóttir, hlaut gullverð- laun á alþjóðlegri sýningu listiðnað- ar, sem haldin var í Munchen í Þýzkalandi. • 23/5. Lithoprent mun innan skamms hefja ljósprentun ýmissa fornrita, sem mikil eftirspurn hefur verið eftir. — Hvalveiði er nú hafin frá veiðistöðinni í Hvalfirði og ganga þaðan fjórir hvalveiðibátar til veiða eins og undanfarin sumur. • 25/5. íslenzkir vísindamenn munu gera víðtækar sjó-, svif- og síldar- rannsóknir í suraar umhverfis landið allt og langt norður og austur í haf. Verður varðskipið Ægir notað í leið- angursferðina. — Liðin eru 10 ár frá því íslendingar hófu reglupundið millilandaflug. — Fiskaflinn fimm fyrstu mánuði ársins var 20 þúsund tonnum minni en á sama tímabili í fyrra. • 30/5. Norrænt le'klistarþing hald- ið í Reykjavík 3.—8. júní og eru 30 erlendir fulltrúar væntanlegir hing- að í því sambandi. — Sjómannadag- urinn haldinn hátíðlegur í 19. sinn um land allt. — Bæjarstjórn Seyðis- fjarðar hefur samþykkt að kaupa nýjan togara, og hafa samvinnu við tvo aðra bæi á Austurlandi um kaup og rekstur togarans. • 8/6. 25 skipstjórar á fiskibátum frá Reykjavík og skipshafnir þeirra hafa gefið 8 þúsund krónur til stofn- unar sjóðs til styrktar dvalargestum á Dvalarheimili aldraðra sjómanna. — Gerðir hefur verið viðskiptasamn- ingur milli Islands og Brazilíu, og munu brazilísk stjórnarvöld leyfa innflutning á verkuðum saltfisk fyr- ir allt að 36,5 millj. króna á ári. • 13/6. Bjarni Ásgeirsson, sendi- herra íslands i Osló, látinn, tæplega hálfsjötugur að aldri. — Til uppþots kom í fangahúsinu við Skólavörðu- stíg. — Elzta og stærsta veiðarfæra- verzlun landsins, Verzlun O. Elling- sen, 40 ára í dag. — Ákveðið 'hefur verið að smíða 800 lesta togara fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur og kemur hann í stað b.v. Jóns Baldvinssonar. • 20/6. Síldarútvegsnefnd hefur á- kveðið að Iágmarksverð á fersk síld, sem veidd verður norðan og austan lands í sumar, skuli vera 120 kr. fyrir uppmælda tunnu, en 162 kr. fyrir uppsaltaða tunnu • 22/6. Væntanlegur hingað til lands frægur spánskur ballettflokkur, Iios- ario-ballettinn, sem halda mun að minnsta kosti sex sýningar hér í Þjóðleikhúsinu. — Svonefnt „Vík- ingamót“ verður haldið hér á landi i sumar. Sækja það vísinda- og menntamenn, sem vinna að rann- sóknum á Víkingatímabilinu, og er þetta þriðja mótið, sem stofnað er til. • 27/6. Fyrsta síld sumarsins berzt til Siglufjarðar, og eru veiðihorfur miklum mun betri nú en mörg und- anfarin sumur. — Eldur kom upp í mjölgeymslu fiskimjölsverksmiðjunn- ar á Kletti, og brann húsið mjög mikið ofan til og urðu skemmdir mjög miklar af eldi og vatni. — Skreiðarframleiðslan á árinu nemur nú um 37.5 þús. lestum, en freðfisk- framleiðslan 27.5 þús. lestum og cr þetta nokkru meira en á s.l. ári. — 15 stiga hiti í Reykjavík og 18 stig á Þingvöllum. — Dr. Hermann Ein- arsson fiskifræðingur telur, að breyt- ingar eigi sér nú stað á síldveiði- svæðinu fyrir norðan og að nú hafi orðið vart síldar á miðunum, sem ekki varð vart undanfarin ár. • 28/6. Byrjað að salta á Siglufirði og salta síldarsaltendur á eigin á- byrgð, þar eð söltun hefur enn eigi verið leyfð. • 29/6. Dauðaslys varð á Grímstaða- holti. Valdimar Össurarson kennari varð fyrir bifreið og var látinn þeg- ar komið var með hann á slysavarð- stofuna. — Landsleikur fór fram milli Islendinga og Finna i Helsinki og unnu Finnar með 2:1. Voru Finn- ar taldir hafa yfirburði í leiknum. — Bjarni Lúðvíksson, 11 ára að aldri, hefur safnað 1000 kr. og gefið Dval- arheimili aldraðra sjómanna. Er það til minningar um móðurbróður hans, Bjarna Þorvaldsson,-sem fórst með e.s. Heklu 29. júní 1940. 15B V í K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.