Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Page 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Page 15
á olíu í Mið-Austurlöndum, og hefur sú framleiðsla stöðugt far- ið vaxandi. Mikið magn flyzt nú þaðan til Evrópulanda. Hin mikla hætta á stöðvun olíu- flutninga, ef til styrjaldar kæmi sýnir ljóslega hvers vegna Eng- lendingar leggja svo mikla rækt við tilraunir sínar með kjarn- orku. Árið 1954 voru 520 olíubor- holur í notkun í Mið-Austurlönd- um, hver þeirra flutti um 750 tonn á sólarhring. I Bandaríkj- unum voru 1000 sinnum fleiri holur eða um 500.000, sem hver að meðaltali flutti 2.1 tonn á sól- arhring. Sérhver hola í Mið- Austuriöndum gefur þá 2—300 sinnum meira olíumagn en hver hola í Bandaríkjunum. Olíusvæðin, sem nú eru kunn, liggja í tveim beltum. Annað byrjar í Suður-Ameríku og ligg- ur norður eftir Bandaríkjunum og Kanada, hitt á upphaf sitt á Borneo og teygir sig gegnum Ev- rópu, og endar sennilega í Dan- mörku, en þar hafa amerísk olíu- félög nýlega eytt milljónum króna í leit að olíu. Orkulindirnar, sem enginn nú- tímamaður getur verið án, eru því einkar hugnæm umræðuefni. IVIynd 4 ttlaHHÍauAa AkipiÍ á Morðurskautshöfum Það var sólbjartan dag nokk- urn í ágústmánuði árið 1931, að lítið flutningaskip 1300 lestir að stærð, lagði úr höfn í Vancouver, British Columbia, með rauðan fána við hún, merktan í einu horninu bókstöfunum H. B. C. (Hudson Bay Company) og átti að sigla meðfram hinni háska- legu strandlengju Norð-Vestur- Canada um það bil 3000 mílna vegalengd til ákvörðunarstaðar, eða að mynni Mackenzie-ár. Þar af um 600 mílna leið yfir híð tor- færa Beauforthaf, sem skipum er aðeins fært takmarkaðan tíma árs, vegna sífelldrar hættu borg- arísjaka. rekíss og helluíss. Skip- ið var hið gamalrevnda gufuskip Baychimo. birgðaskip hins fræga Hudson Bav félags. Áður hafði skipið farið níu sinnum þessa sömu leið og jafnan fhitt dýr- mætan farm loðskinna til heima- hafnar að loknum veiðitíma. Bav- chimo var ekki upphaflega bvggt til að sigla á draumfögrum sföðu- vötnum, heldur beinb'nis til að vera gagnsamt, hagnýtt og um- fram allt traustbyggt fliúninga- skip, sem staðist gæti hvers kon- ar ógnir og áföll lofts og siávar Norður-heimskautshafa. Sióleið- in lá upplandsleiðina milli Van- couvereviar og meginlands, þá gegnum Beringssund og kringum nvrzta odda meginlands Norður- Ameríku. þar sem er Point Barr- ow, Alaska og loks SA til Vict- oriaeyju. Skipstjóri Baychimo, Cornwall, var einnig gamal- reyndur sjómaður. Á skininu var þriátíu og níu manna áhöfn. Hinn 13. sept. los- aði Baychimo það síðasta af farminum, sem afhenda átti við Hershelleyju og hafandi fengið aðvörun um að mikinn ís væri r SIG. ODDGEIRSSON ÞÝDDI ÚR The Wide World Magazine FRÁSÖGN: Artic Derelict L______________________j að draga saman fyrr en vant var, við strendur Alaska, sneri Corn- wall skipstjóri skipi sínu í átt til heimahafnar og hóf þegar kapphlaup við ísinn til að vera á undan til Beringsunds og komast á örugga siglingaleið. 1 lest skips- ins voru loðskinn að verðmæti um ein milljón dollara. Hinn 20. sept. rennir Baychimo sér, með öllum sínum þunga og öflugu vélum, á rekísinn, sem stöðugt verður þykkari og fastari fyrir, ofsalega iemja skrúfurnar sjóinn, sem enn er auður aftan við skipið. Ef til vill tekst að brjótast í gegn? En um nóttina sigldi Baychimo með óhugnanlegum dynk á hindrun, sem ekki varð brotizt í gegnum. Vélamar voru þegar stöðvaðar, bráðabirgðarannsókn gerð, en ekkert sjáanlegt tjón hlotizt af. En í afturelding kom í ljós að hér voru hræðilegar staðreyndir á ferð, sem vöktu ótta og skelf- ingu allri áhöfn skipsins: Tveir miklir ísflákar höfðu drifið und- an ofviðri og sterkum straumum frá norðurodda Alaska og slegið órjúfandi hring um skipið. Litla Baychimo var nú fast í gildru, sem ekki varð úr komizt. Ekki var skipshöfnin þó í bráðri 223

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.