Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Qupperneq 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Qupperneq 18
Fiskframleiðsla í heimmum Eftirfarandi er hluti af mjög ýtarlegri grein úr Fjármála- tíðindum (útgef. Landsbanki íslands), þar sem fjallað er um þróun í fiskveiðum síðustu áratugina. Fiskveiðar íslendinga og þorsk- og síldveiðar á fslandsmiðum. Fiskveiðar eru mjög mikilvæg- ur þáttur í fæðuöflun mannkyns- ins, og þær eru einn helzti at- vinnuvegur margra þjóða. Beztu fiskimið heimsins eru á norður- hveli jarðar og þá einkum í At- lantshafi. Mynd 1 sýnir, hvern- ig fiskveiðar skiptust eftir hin- um ýmsu hafssvæðum árið 1956. Mest veiddist á Norðaustur-At- lantshafi, en það er svæðið milli Grænlands og Vestur-Evrópu. Næst kom Norðvestur-Kyrrahaf, en Japanseyjar eru á því svæði. Fiskveiðar í vötnum eru víða all- miklar, en langmest kveður að þeim í Asíu. Mynd 2 sýnir aflamagn 34 mestu fiskveiðiþjóða heims árið 1956, en aðrar þjóðir veiddu minna en 100.000 tonn hver. Jap- anir veiða lang- mest, en síðan koma stórþjóð- irnar: Banda- ríkjamenn, Kín- verjar og Rússar. I fimmta sæti eru Norðmenn, og veiða þeir helmingi meira en næsta þjóð á eftir þeim. Is- lendingar eru. í 14. sæti þetta ár, litlu neðar en Frakkar, en með töluvert meira aflamagn en Portúgalar og Danir. Portúg- alska nýlendan Angóla í Suð- vestur-Afríku er ofarlega í röð- inni. Kórea, sem er tvískipt í 19. og 20. sæti, hefði verið í 11. sæti, ef hún væri sameinuð. Færeying- ar rétt ná því að komast á þenn- an lista með 116.000 tonna fisk- afla. Þróun í fiskveiðum síðustu áratugina. 1. töflu er sýnd þróunin i fiskveiðum nokkurra landa frá því fyrir stríð. Auk Evrópulanda eru tekin helztu fiskveiðilönd ut- an Evrópu. Þróunin hefur verið mjög mismunandi í hinum ýmsu löndum, þótt yfirleitt hafi verið um aukningu að ræða. Aflaaukn- ingin hjá íslendingum hefur ver- ið minni undanfarin ár en hjá sumum öðrum þjóðum. Þetta stafar nær eingöngu af afla- tregðu á síldveiðum við ísland, en „þorskveiðarnar" hafa gengið mun betur og farið vaxandi. I sambandi við aðrar þjóðir er mest áberandi aflaaukningin hjá Dönum, og einnig hefur hún orð- ið mikil hjá Portúgölum. Mynd nr. 3 og 4 sýna, hvernig aflamagn helztu Evrópuþjóða hefur skipzt eftir fisktegundum og verkun eða hagnýtingu aflans. Er til dæmis athyglisvert að sjá, að á þeim árum, sem miðað er við, hafa nær % hlutar af afla Norðmanna verið síld. I flestum þessum löndum er mikill hluti aflans nýr fiskur og ísaður, en hvergi er eins mikið hraðfryst í Evrópu og á íslandi. Aðeins þrjú lönd munu framleiða meira af hraðfrystum fiski en Island, en það eru Japan, Bandaríkin og Kanada. FiskveiSar íslendinga. Frá því á síðustu áratugum 19. aldar hafa fiskveiðar Islendinga stöðugt farið vaxandi, þótt afl- Mynd 1. Heildarfiskveiðar árið 1956 skipt eftir helztu, fiskimiðum. Hafssvæði Vatnasvæði: A: Norðvestur-Atlantshaf H: B: Norðaustur-Atlantshaf I: C: Miðjarðarhaf og Svartahaf J: D: Norðvestur-Kyrrahaf K: E: Norðaustur-Kyrrahaf L: P: Mið-Atlantshaf, vesturhluti M: G: Mið-Atlantshaf, austurhluti N: I: Afríka V: II: Norður-Ameríka VT: III: Suður-Ameríka VII: IV: Asía Vestur-Indlandshaf Mót Indlandshafs og Kyrrahafs Mið-Kyrrahaf, austurhluti - Suðvestur-Atlantshaf Suð austur- Atlantshaf Suðvestur-Kyrrahaf Suðaustur-Kyrrahaf Evrópa Ástralia Rússland 226 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.