Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Blaðsíða 41
(jlœþaApil
S E M H E P P N A Ð I S T
Fyrir réttum 38 árum fund-
um við hér í Faxaflóa og færð-
um til lands tundurdufl. Þetta
var vorið 1920 á vélbátnum Gull-
fossi frá Keflavík. Skipstjóri á
bátnum var Albert Ólafsson, sem
nú býr við Hafnargötu 22 í Kefla-
vík, alþekktur sjósóknari og afla-
maður. Vélstjóri var Þórarinn
Brynjólfsson, Aðalgötu 4, dáinn.
Hásetar voru: Magnús Guð-
mundsson, Vesturgötu 7, dáinn,
Vilhelm Ellefssen, Aðalgötu 10,
Bragi Ólafsson Edinborg, nú hér-
aðslæknir á Eyrarbakka og ég
undirritaður, þá allir frá Kefla-
vík.
Við vorum á útilegu á svoköll-
uðum Köntum, en venjulega tók
ferðin 8—10 daga. Alla þessa
ferð var veður gott og öldulaus
sjór. Einn daginn sáum við tund-
urdufl, en það var þá alvanalegt,
eftir heimsstyrjöldina 1914—18.
Við töluðum rækilega um hvað
gera skyldi, því við töldum, að
duflið gæti orðið okkur eða öðr-
um að tjóni ef ekkert væri að-
hafst um að handsama það. Vildu
sumir að lagt væri að duflinu
og það tekið inn í bátinn því að
ekki þótti það vegna stærðar
óviðráðanlegt. Varð það og úr að
skipstjóri legði að duflinu, og
kom það í minn hlut að innbyrða
duflið, og var það mjög auðvelt,
því að ekki mun það hafa verið
nema svo sem 35—40 kg. að
þyngd. Fórum við svo varlega
með það sem við gátum og gætt-
um fyllsta öryggis. Vöfðum það
t. d. í strigapokum og geymdum
það þannig um borð þar til við
hefðum lokið veiðiförinni.
þeir leggi kapp á að semja um
gjaldeyrinn til að auðvelda þeim
smygl. Þetta vil ég segja að séu
tilhæfulaus ósannindi. Allt um-
tal um gjaldeyrinn við samninga-
borðið kemur ávallt frá útgerð-
armönnunum sjálfum. Smygl er
löstur sem tilheyrir sjómönnum
allra landa hvar sem þeir fara.
Liggja til þess margar ástæður,
sem fyrst og fremst eiga rætur
sínar að rekja til mannlegs veik-
leika o g sjálfbjargarviðleitni.
Hvort smygl er almennt meðal ís-
lenzkra sjómanna veit ég ekki.
En þjóðfélag okkar, sem býður
þegnum sínum, er þykir gott
brennivín, allt að 3180% álagn-
ingu á þann góða vökva hlýtur
að standa höllum fæti gagnvart
smyglurum og beinlínis mana
syni sína að framkvæma lögbrot.
Merkilegast við grein Jóns
Árnasonar er hugmynd hans að
gefa sjómönnum tækifæri að
leggja inn í Landsbankann gjald-
eyri sinn og geta tekið hann aft-
ur er þeir vilja nota hann, þó með
ákveðnum uppsagnarfresti. Með
því móti er mörgum sparsömum
sjómanni gert kleyft að geyma
gjaldeyri sinn og þá væntanlega
á íslenzkum vöxtum. Gjaldeyrir-
inn sem þannig kæmi inn í bank-
ana nytjaðist þá að nokkru gjald-
eyrisfátækri þjóðinni, auk þess
sem sjómaðurinn gæti sparað sér
smátt og smátt álitlegri summu,
sem stæði sem gullpeningur yfir
síhrakandi íslenzkum gjaldmiðli.
Þegar komið var í land hringdi
Albert til Sigurgeirs Guðmunds-
sonar í Tjarnarkoti, en hann var
þá hreppstjóri, en hann hafði
aftur samband við þáverandi
sýslumann, Magnús Jónsson bæj-
arfógeta í Hafnarfirði, er sendi
mann af varðskipinu Fylla til
þess að gera duflið óvirkt. Við
athugun kom í ljós að „takkarn-
ir“ á duflinu voru óvirkir, en
sprengiefnið algerlega óskemmt.
Var það sprengt í svokölluðum
Vatnsnesklettum með þeim ár-
angri að margar rúður brotnuðu
heima á Vatnsnesi, en það mun
hafa verið í 12-—1500 metra f jar-
lægð.
Strákunum á Gullfossi var að
vonum hálf illa við að hafa dufl-
ið svona lengi um borð, sérstak-
lega Magnúsi og vélstjóranum,
en Braga og Vilhelm þótti ekkert
að því að ala á þeirri hættu sem
þessu var samfara, þótt þeim
finndist ekkert athugavert við
að geyma það þar til farið væri
í land.
Hér er ekki sagt frá þessu sem
neinu afreksverki, heldur af því,
að ég hef hvergi séð þessa getið,
né heldur að vélbátur hafi tekið
um borð tundurdufl og geymt
um borð í viku og flutt það á
land til að gera það óvirkt, en
þetta var gert á þessum litla bát,
Gullfoss, sem var 14 tonn að
stærð, með 28 hk. Alpha-vél, en
þetta var hin mesta happafleyta,
enda orðlagður dugnaðarmaður
sem honum stjórnaði. Orðlengi
ég svo ekki meira um þetta.
Akranesi, 4. júlí 1958.
Valdimar Kristmundsson.
HAPPDRÆTTI DVALARHEIMILIS ALDRAÐRA SJDMANNA
ÖLLUM ÁBÓÐA VARIÐ TIL BYBBINGU
DVALARHEIMKISINS
BKRIFSTöFA TJARNARGÖTU 4 - 3. HÆÐ - AÐALUM BÖÐ VESTURVER - SÍMI 117 1-7 177 57
VÍKINGUR
249