Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Blaðsíða 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Blaðsíða 47
Þar sem „Brandur" skoppaði með öldunum þvert í vindinn minnti hann meir en nokkru sinni fyrr á afdankað, vanhirt leikfang. Öld- urnar skóku hann til svo að hann hossaðist skringilega. Þilfarið var hált af bleytu, svo að stundum þeg- ar hann tók krappa veltu, hékk drengurinn utan í stýrishúsinu á annarri hendi og rann flatur á þil- farið, og með hinni hendinni hélt hann af alefli um sjónaukann, eins og maður heldur á dýrmætu her- fangi. Stundum leit hann upp á andlit Gregsons, sem rýndi þungbúið 1 regnþykknið, eins og það vildi bjóða öllum veðrum birginn. Það var þög- ult, en drengurinn gat ekki séð, hvort þögn þess stafaði af reiði eða öðrum tilfinningum. Hann langaði til að yrða á þetta andlit. Myndin úr káetunni, lík flugmannanna, sem lágu þar hlið við hlið, sótti sífellt á hug hans, miklu meir en hugsun- in um hinn dauða véamann, sem lá eins og ópersónuleg, aflöguð hrúga á þilfarinu. Hann hugleiddi sam- talið við enska flugmanninn. Hann hugsaði minna um Messner og þá með kala. Hann ímyndaði sér Mess- ner sem nokkurs konar orsök allra hinna hryllilegu atburða. Og þó var það reyndar Messner, sem komið hafði með sjónaukann, og sjónauk- inn var það eins á þessum degi, sem ekki líktist ljótum, hræðilegum draumi. Hann var mjög þreyttur og mjög svangur. Gregson hafði ekkert hrópað, og það hafði ekkert te ver- ið lagað. Gregson var stöðugt þög- ull og alvarlegur á svip. Drengurinn rauf loks þögnina. — Hvenær haldið þér, að við verðum komnir inn, skipstjóri? Gregson svaraði ekki. Hann starði í sortann, harðneskjulegur á svip. Drengurinn hafði ekki séð þennan svip áður. Hann hafði stundum ver- ið smeykur við Gregson, en nú fann hann eitthvað traustvekjandi við þennan stóra, svipmikla mann. Það var huggun að návist hans, svo að hann gleymdi um stund því, sem hann hafði séð þennan dag. Þeir voru að komast inn í ósinn núna. Gregson lagði hart á stýrið og sneri bátnum í norðvestur. Sjó- VÍKINGUR inn var að lægja núna, og dreng- urinn gat séð móta fyrir strönd- inni. Það grillti í dimmbrún hæð- ardrögin gegnum sortann. Honum varð litið á Gregson og sá að hann vætti varirnar í regninu og fannst eins og svipur hans hefði aðeins mildast. Það gaf honum von um, að Gregson myndi e. t. v. ætla að tala aftur, svo að hann áræddi að rjúfa þögnina. — Bráðum komnir, skipstjóri, sagði hann. Þá hóf Gregson upp raust sína með þvílíkum ofsa, að það var sem innibyrgð reiði, ótti og sársauki hefðu brotizt út í einu. —Guð refsi þeim! öskraði hann. — Guð refsi þeim öllum saman. Hvers vegna láta þeir okkur ekki í friði? Hvers vegna láta þeir okk- ur ekki í friði? Hvað lengi ætla þeir að halda áfram að myrða okkur? Guð refsi þeim og fordæmi þá alla, alls staðar í heiminum. Hann þagnaði og gaf frá sér þungt andvarp, eins og hann væri örmagna. Hann stóð þarna þung- lamalegur og laut yfir stýrishjólið, öll harðneskja horfin úr svip hans. Andlit hans var gamalt, bugað, fölt andlit, regnið streymdi niður það eins og táraflóð. Hann lagði hönd sína á öxl drengsins, eins og hann myndi nú allt í einu eftir honum. „Brandur“ mjakaðist nær ströndinni og var nú í landivari. Það voru engin Ijós í kvöldhúminu, og rökkrið seig yfir himininn, hæðadrögin í fjarska og klettana á ströndinni. Drengurinn hreyfði sig ekki. Allan tímann hafði hann langað til að lyfta sjónaukan- um að augum sér og líta í hann. Af einhverri ástæðu langaði hann ekkert til þess núna. Það virtist ekki vera mikið gagn að því að horfa í sjónaukann. Hann var jafnvel ekki viss um, að það væri mjög gagnlegt að eiga hann. Þar sem hann stóð þarna með hönd Gregsons á öxl sér, hugsaði hann um dauða véla- manninn; hann hugsaði um hin ofsafengnu hróp Gregsons; hann hugsaði um flugmennina báða, liggj- andi í fölu ljósi lampans í þröngri káetunni og skuggi hans féll á hin fölu, látnu andit þeirra, sem lágu þar, hlið við hlið. Og þeir urðu í augum hans, á þeirri stundu, allir flugmenn, allir drepnir flugmenn, alls staðar í heiminum. Þeir skriðu nú inn í ósmynnið. Gregson lét hendina stöðugt hvíla vingjarnlega á öxl hans, án þess að segja orð, og drengurinn leit enn einu sinni á hann og sá aftur hið þreytta, gamla andlit, sem virtist baðað í tárum. Hann sagði ekkert, og innra með honum vaknaði hljóð- lát gleði. Hann hafði verið með mönnum í stríði og hafði séð dauðann. Hann var á lífi, og „Brandur“ var kom- inn heim. £cgutck FRAMLEIÐUM tíR Ni:i.O\ — TERYLENE — BAÐMULL SNURPUNÆTUR ÞORSKANET REKNET ÍSUNET LOÐNUNÆTUR HROGNKELSA NET BÁTATROLL BJORN BENEDIRTSSON H.F. NET A VERKSMIÐ J A — REYKJAVÍK V--------------------------------- j 255

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.