Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1967, Blaðsíða 24
Las Palmas á Kanaríeyjum.
Eins og flestum er kunnugt
eru „Jöklaskipin" komin í hálf-
gerðan víking á heimshöfunum,
vegna breyttra aðstæðna hér
heima, og sigla nú um öll heims-
ins höf, eftir óskum leigutaka, og
koma að sjálfsögðu víða við og á
marga athyglisverða staði. Við á
M/S „Langjökli" lentum í þeirri
lukku að verða fyrsta íslenzka
skipið, sem kom til Cape Cane-
veral, eða Caneveralhöfða, eins
og hann er kallaður á íslenzku,
síðar Kennedyhöfði, eða Cape
Kennedy.
Koman á þennan stað hafði
mikil áhrif á mig, og verður mér
ógleymanleg, ég vildi gjarnan
geta gefið öðrum hlutdeild í þess-
ari upplifun, þó ég viti að það
verði aðeins svipur hjá sjón.
M/S „Langjökull" hélt frá
Ponce á Porterico undir stjórn
Haraldar Þórðarsonar skipstjóra
á Sjómannadaginn 15. maí 1966
94
í sól og sumarblíðu, eftir mjög
ánægjulega dvöl þar, frá því á
friðardaginn 8. maí, sem einnig
var mjög fagur dagur, eins og
flestir dagar þarna á þessum
tíma, þar sem allt baðar í sól og
sumar angan, og borgin endur-
ómar öll af músik og söng, því
verzlanirnar hafa flestar hátal-
ara- og magnaraútbúnað til að
draga að sér viðskiptavinina, og
einnig eru verzlanirnar loftkæld-
ar, til þægindaauka. Um fegurð
kvenfólksins og litríkan klæðnað
þarf ekki að ræða, það þekkja
flestir.
Þarna losuðum við Tunafisk,
sem við tókum í Las Palmas,
veiddan af japönskum fiskimönn-
um, þarna í Ponce er hann soðinn
niður af Del Monde-verksmiðj-
unum, sem nota sér hið ódýra
vinnuafl.
Á leið okkar til Flórida sigld-
um við framhjá Haiti og Cuba,
og með Bahamaeyjum til Cape
Kennedy, sem nú er aðal eld-
flaugarstöð Bandaríkjanna. —
Þangað komum við árla morguns
þann 18. maí. Þar var margt, sem
manni þótti nýstárlegt að sjá, og
vakti undrun og aðdáun, ásamt
einhverri óskiljanlegri óttakennd,
er maður agndofa horfir á þessi
risatæki, geimrannsóknaskipin,
skotturna, og mannvirkin, sem
allt er ógnarstórt í sniðinu. Sjálf
borgin er nýtízkuleg í byggingar-
stíl sínum, og maður er undrandi
yfir hinum öra vexti staðarins,
sem alltaf dregur til sín meira og
meira fólk.
Eftiv ftjjörn Úlafsson. loftskcytamunn.
VlKINGUR