Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Side 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Side 1
EFNISYFIRLIT SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 36. ÁRGANGUR — 6. TÖLUBL 1974 Dómurinn í Haag Staðfesting úreltrar nýlendustefnu Guðm. Jensson: Dómurinn í Haag. • Ólafur Vignir Sigurösson: Hugleiðingar um fiskileitarkort. Guðfinnur Þorbjörnsson: Á Ströndum 1951. Dr. Gunnlaugur Þórðarson: Kynnist ferð til Austurlanda. • Ný skip í veiðiflotanum 1973. • Þórður Jónsson, Látrum: Þegar atvinna lá ekki á lausu. H.f. Eimskipafélag Islands. Á frívaktinni. Jónas Guðmundsson: Mér datt það í hug. Fiskimjöl til manneldis. • Jón Eiríksson: Sjóminjasafn, siglingasaga. Stofnun Stýrimannafélags Islands. • Myndir í opnu tók Troels Bendtsen. Frívaktin o. fl. SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGU R Dtgefandi: F. F. S. 1. Ritstjórar: Guðm. Jensson (áb.) og Jónas Guðmundsson. Uitnefnd: Guðm. Kjærnested, Guðm Ibsen, Daníel B. Guðmundsson Varamenn: Ólafur Vignir Sigurðs- son, Ásgrímur Björnsson, Jón Wium. Ritstjórn og afgreiðsla er að Bárugötu 11, Reykjavík. Utanáskrift: Sjómannablaðið Víkingur, Pósthólf 425, Reykjavík. Sími 1 56 53 Árgangurinn kostar kr. 1000. Prentað í lsafoldarprentsmiðju hf. VÍKINGUR Guðmundur Jensson: og ofbeldis Upp úr miðjum júlí barst hing að til lands fregn um að alþjóða- dómstóllinn í Haag hefði sam- þykkt, — ekki án mótatkvæða þó — ályktun þess efnis að íslend- ingar eigi eklci að manni skilst, lagalegan rétt til útfærslu fisk- veiðilögsögunnar í 50 sjómílur, eins og gert var 1. september árið 1972. Hinn siðferðilega og hags- munalega rétt Islendinga hefur dómstóllinn líklega ekki skoðað niður í kjölinn. Sennilega ekki talið það til verkefna sinna í leit að haldbærum forsendum til að grunna niðurstöður sínar í mál- inu. Á hinn bóginn talar þögnin sínu máli í því efni til okkar frá dómssalnum og gefur óneit- anlega til kynna að á þeirri „rétt lætis“ vogarskál hefur ofbeldi og yfirgangur stórvelda gagnvart smáþj óðum undanfarna áratugi hlotið meiri vigt og náð fyrir augum dómenda, og þá sem lög- legur heföbundinn réttur. (!). Þegar þetta er ritað hafa úr- slit í málunum ekki verið birt í heild, en það skiptir ekki megn- máli, okkur er ánægjulegt að vita að „hárkollurnar“ í Haag hafa óvirt málstað sjálfstæðrar þjóðar og munum við að sjálf- sögðu hafa þennan „boðskap erkipiskups“ að engu og herða sóknina til fullra yfirráða yfir landgrunninu. Eigi að síður kunna einhverjir að halda að ályktanir af úrskurði Haagdómstólsins kunni í fram- tíðinni að veikja aðstöðu strand- ríkja og þá fyrst og fremst smærri ríkja, sem túlkaverðamál stað sinn með rökum á ráðstefn- unni í Caracas. Eg tel hins vegar mjög fráleitt að draga slíkar ályktanir, jafnvel þótt öflugustu andstæðingar okkar þar, Bretar og Þjóðverjar reyni að notfæra úrskurðinn sér til framdráttar, sem þó verður að telja óvíst. því einmitt þessi úrskurður gæti orð- ið til þess að málin snerust illi- lega í höndum þeirra og gæti tekið neikvæða stefnu gagnvart þeim sjálfum. Vafalaust mun úr- skurðurinn frá Haag á þeim vett- vangi þykja skuggalegur fyrir smáþjóðirnar. Það er nú einu sinni svo, að þróunarhjólið hefur snúist ört síðustu misseri og jafn- vel mánuði, og líklega má telja að höfuðandstæðingar okkar í landhelgismálinu kjósi að tala sem minnst um alþjóðadómstól- inn í Haag, ekki síst vegna þess að hinar steinrunnu „kvarnir“ sem sniglast hafa áfram í höfð- inu á meirihluta dómenda þar (og jafnvel í höfðum annarra), 145

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.