Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 2
gerðu sér ekki grein fyrir þeim staðreyndum að þeir höfðu staðn- að á eldra tímaskeiði með úrskurð sinn. Hann er ekki í takt við tímann. Dómendur hökta einhvers staðar langt á eftir þróuninni og samtímanum. I ljósi þessa getur því engum Islendingi dulist að þetta er nítj- ándu aldar dómur, kveðinn upp af mönnum, sem augsýnilega halda á lofti málstað þeirra þjóða þjóða, sem hæst bar á á liðinni öld í skjóli hervalds og of- beldis. Það hefði t. d. verið lærdóms- ríkt að sjá hver árangur hefði náðst í frelsisbaráttu hinna fjöl- mörgu Afríkuþjóða gegn kúgur- um sínum, ef þær hinar sömu hefðu skotið kröfum sínum til Haagdómstólsins. Hætt er við, svo ekki sé fastar að orði kveðið, að þær þjóðir, sem slíkt glapræði hefði hent, myndu verða hinar síðustu til þess að öðlast frelsi, skurnin á fjöreggi þeirra myndi reynast brothætt í höndum dómendanna, sem horfa stjörfum augum á „hefðbundinn rétt“, sem þó var troðið upp á þjóðirnar með hreinu ofbeldi á sínum tíma. Ég held að við ættum að láta okkur nægja þessar hugleiðingar um hallærisdóminn í Haag og víkja að nokkrum atriðum varð- andi framtíðarviðbrögð okkar í landhelgismálinu. II. Svo er nú komið og verður ljósara með hverjum deginum að geigvænlega horfir um afla- brögð á fiskimiðum okkar. Aflarýrnunin frá síðustu ára- mótum er augljóst dæmi um þetta. Smáfiskadrápið út af Húnaflóa og fyrir Norðurlandi í vor, þegar breskir togarar jusu ómældu magni af ókynþroska fiski úr sjónum varð þess vald- andi að sett var veiðibann á upp- eldissvæðin út af Horni. Þessari aðgerðir koma þó í seinna lagi að mörgum finnst, en þarna feng- um við lexíu sem á að kenna okk- ur að herða eftirlitið með fiskin- um í sjónum, svo með aðgerðum megi hindra hverskonar rán- yrkju í hafinu. Hver sem í hlut á. Og þetta sýnir okkur líka að við verðum að herða kröfu okkar til landgrunnsins alls. Það er nauðsynlegt til þess að geta kom- ið í veg fyrir misnotkun fiski- stofnanna. Hafréttarráðstefnan í Caracas stendur nú yfir og eru engin úr- slit fengin þaðan enn. Skiptir það ekki meginmáli enn sem kom- ið er. Ný viðhorf í takt við tím- ann hafa komið þarna fram og sjónarmiðin frá Haag eiga litlu opinberu fylgi að fagna, sem bet- ur fer. Það er hvorki staður né stund hér til þess að fjalla um ráðstefn- una. Það sem er í dag, verður allt breytt á morgun. Sviptingar munu verða miklar. Þó má vekja máls á einu atriði, en það er bafsbotninn. Mjög sterk tilhneig- ing hefur verið til þess að greina á milli auðlinda sem borað er eftir og þeirra auðlinda er synda. Þannig á hafsbotninn að vera eign ríkjanna, sem leita eftir olíu og öðrum auðæfum, sem bor- að er eftir, en það sem syndir í sjónum og er ekki á botninum, það á að vera sameign ríkja. Ekki hefur það komið fram, að botn- vörpungar vinna á hafsbotninum. Svo til allt landgrunnið, sem ó- slétt var áður umhverfis ísland er nú sléttað af áratuga togveið- um. Togarar hífa inn grjót, hífa inn björg sem vega mörg tonn og hinn hrjúfi botn hefur sléttast og er unninn á svipaðan hátt og þegar land er plægt og brotið til ræktunar. Togararnir vinna því ekki upp í sjó, heldur draga eftir botni hafsins og hafa svo sannarlega „afnot“ af hafsbotn- inum ekki síður en borpallar stór- þjóðanna. Þessi plæging fiskimiðanna hefur kostað mikið. Mörg fiski trollin hafa horfið í hafið. Það er því síður en svo að trollið snerti ekki botninn. Fiskveiðar með botnvörpu verða ekki stund- aðar nema með „aðgangi" að hafsbotninum og er það tímabært að sú skilgreining veiðanna komi fram. Ekki ber hesturinn það sem ég ber, sagði maðurinn, hafs- botninn er forsenda fiskveiða og alls lífs í sjónum og þetta má ekki slíta úr samhengi, eða skilja að þegar rætt er um auðlinda- lögsöguna og mörk hennar. Guðmundur Jensson. VÍKINGUR ORÐSENDING frá Sjómannablaðinii YlKINGI Þá kaupendur, eldri og yngri, sem vantar laus blöð, eða árganga eftir 1945, er bent á, að senn fer að ganga á þann lager. 1 árgang eldri en 1945 eigum við aðeins blöð á stangli og kaupum inn blöð, sem vanta í þá árganga, SjómannablaSiS VÍKINGUR 146

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.