Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 5
Á STRÖNDUM 1951 Hér hefjast mjög skemmtilegir þættir eftir Guðfinn Þorbjörnsson, sem er lesendum Víkings að góðu kunnur Forspjall. Árið 1951 var ég undirritaður ráðinn verksmiðjustjóri við Síld- arverksmiðju Ingólfs h.f. á Ing- ólfsfirði á Ströndum, sem varð síðasta vinnsluár þessarar verk- smiðju um ófyrirsj áanlegan tíma og alltént í upphaflegu formi og með þeim vélum, er hún var þá búin. Þó er ekki þar með sagt, að allur verksmiðjurekstur eða önn- ur stóriðja sé útilokuð í allri framtíð á þessum stað, og aldrei skyldi maður segja aldrei, sízt ef um síld er að ræða. Þótt mann- virki öll hrörni undan tímans tönn, vélar og tæki séu flutt burt og vinnsluaðferðir breytist og jafnvel fólkið sjálft hverfi frá, eru hin ýmsu skilyrði landsins sjálfs hin sömu og þau voru, þeg- ar staðurinn þótti eftirsóknar- verður, auk þess sem nútíma- tækni auðveldar allar fram- kvæmdir og getur í bókstaflegri merkingu flutt fjöll. A ödragandi. Ár undangengis áratugar, 1940—1950, voru eins og svo mörg önnur ár í okkar íslend- ingasögu ólík hvert öðru og á þeim urðu miklar breytingar í atvinnuháttum, sjávarafla og hagnýtingu hans svo og á allflest- um öðrum sviðum þjóðlífsins. Fyrri hluta þessa tímabils var mikill síldarhugur, ekki aðeins hjá útgerðarmönnum heldur meðal alls þorra þjóðarinnar að stjórnvöldum ekki undanskild- um, enda mikil síldarganga fyrir öllu Norðurlandi og víðar. Þá VÍKINGUR varð til hin afkastamikla nýsköp- unarstjórn og mikil bjartsýni og gróska var almennt ríkjandi. Þá var samið við svenska um fjölda- framleiðslu á hinum hálfmis- heppnuðu (?) Svíþjóðarbátum og við Breta um 30—40 togara, ný- sköpunartogarana. Til þessara skipa skyldi ekkert sparað og af- greiðslu þeirra varflýttsemverða mátti, enda allur skipastóll orð- inn aldraður, þar eð lítil sem eng- in endurnýjun hafði átt sér stað en talsverð rýrnun varð síðast- liðna tvo áratugi. Hins vegar ku hafa verið fyrir hendi dgrir sjóö- ir eftir undangengin veltiár stríðsáranna. Á þessum árum voru byggð- ar margar stórvirkar síld- arverksmiðjur víðs vegar um Norðurland, auk þess sem eldri verksmiðjur voru endurbættar og afkastageta þeirra stóraukin. Síldarverksmiðjur ríkisins (S.R.) og félög einstaklinga kepptu um þessa uppbyggingu, en hún átti sér stað á Djúpuvík, Ingólfsfirði (á Ströndum), Siglufirði, Hjalteyri, Krosseyri, Húsavík og Raufarhöfn. Sameig- inleg markmið allra þessara að- gerða var fyrst og fremst að breyta hinum óþrjótandi síldar- afla, sem talinn var varanlegur, á sem fljótvirkastan hátt í mjöl og lýsi. Allt kapp var lagt á að þessar verksmiðjur gætu komizt sem allra fyrst í brúkið og að þær yrðu sem stórvirkastar. Ekkert var sparað, nótt lögð við dag við byggingar þeirra, enda eins og fyrr segir nægir pening- ar og bjartsýni. Sennilega hafa verið slegin fleiri met á þessum árum í byggingarhraða, skipu- lögðum vinnubrögðum og fram- leiðslu margs konar vinnuvéla og tækja en nokkurn tíma fyrr eða síðar. Á ég þó aðallega við hinar stórvirku verksmiðjur S.R. á Siglufirði og Skagaströnd, sem spruttu upp á svo stuttum tíma, að fáir mundu trúa sem ekki fylgdust með verkum. Báðar þessar risaverksmiðjur voru al- gjörlega hannaðar og byggðar upp frá grunni af íslenzkum fag- Eyri við Ingólfsfjörð. 149

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.