Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Blaðsíða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Blaðsíða 11
Frá Patreksfirði. Skúta á leið út fjörðinn. Börkuð segl ber orðið sjaldan við haf og himinn út af Vestfjörðum, en voru algeng sjón fyrir fáeinum áratugum síðan. bátnum, þilfarsdæla (handdæla) sem einnig- var góð ,svo verulega meira mátti leka svo dælurnar hefðu ekki við meðan vélin gekk. Við tókum púströrið af til að láta áttavitann jafna sig, því nú var séð að við Hom stóð þokan eins og veggur. Skipstjórinn at- hugaði kortið og stefnuna, en við sviftum bátnum til, til þess að kynnast áttavitanum. Út af Horn- bjargi, eða með það þvert, keyrð- um við inn í þokubakkann kol- svartan. Skipstjórinn var þá kom inn með stefnuna, sem hann sagð- ist hafa tekið á Skagatá ,tók sjálfur við stýrinu, og sagðist ætla að halda við það fyrst um sinn eitthvað norður á bugtina. Þokulúðurinn fannst ekki, og þótti skipstjóranum það slæmt, en ég taldi að hávaðinn frá púst- Þórður Jónsson, Látrum: (£rh.) Þegar atvinnan lá ekki á lausu Ferðin til Akureyrar var haf- in. Við munum allir hafa lesið sjóferðabæn hver með sér við undirspil hins háværa mótors, en svo var farið að huga að hlut- unum. Mér var fengin vélin til gæslu fyrst í stað, en svo sannarlega átti hún ekki að stöðvast fyrir gæsluleysi, ég leit á rokkinn, það virtist allt í þessu fína svo ég gaf henni vatnið og j ók spennuna þannig að hún vann með fullu álagi. Við vorum komnir langleiðina útað Kóp, þegar mér fannst vél- in ganga óeðlilega heit á sveifar- áslegunni, svo það var ákveðið að stöðva vélina. Við athugun kom í ljós að legan fékk ekki nægjanlegan smurning við fullt álag, legan var óskemmd enn sem komið var. Það tók ekki mjög langan tíma að lagfæra þetta, en að viðgerð lokinni var aftur sett í gang. Við reyndum að spara sem mest grænolíuna, en það var sama, við áttum aðeins eftir í tvær gangsetningar. VÍKINGUR Tálkni gamli var aftur á fullri ferð. Næst var að athuga átta- vitann, því sjáanlegt var, að þok- an mundi mæta okkur ekki síðar en við Horn. Það kom í ljós, að áttavitinn gat snúist heilan hring við minnstu stefnubreytingu, og stoppaði helst ekki, svo hann var ónothæfur eins og var. Okkur datt þá í hug að reyna að ná púst- rörinu af en það var stórt og mikið járnrör sem gekk niður á flangs í kappanum. Eftir mikið baks tókst okkur að ná rörinu af, en þá varð áttavitinn hinn ró- legasti minnstakosti á sléttum sjó. Það var því ákveðið að taka púströrið af þegar við þyrftum á áttavitanum að halda, en hafa það á þess á milli, þar sem af- leitt var að hafa rörið ekki á, bæði vegna hávaða og reyks, mál- ið var leyst. Ferðin gekk vel og við vorum komnir að Hælavíkurbjargi. Góð lensidæla var við vélina sem hafði vel við lekanum enn sem komið var, en þó auðséð að nokkuð mik- ið iak. Önnur dæla var einnig í rörslausri vélinni væri sú síbaula sem heyrast mundi í margra skipið var á hægri ferð. Okkur kom þó saman um að þeir hefðu verið heppnir að við skyldum ekki sigla þá niður þar sem við fórum með fullri ferð. Það mun ha!fa verið komið norður á miðjan flóa, eða svo þegar veruleg afór að grisja þok- una, fórum við þá að mæta risa- sildveiðimóðurskipum sem okkur fundust forvitnileg að sjá ,tókum við þá stundum smá stefnubreyt- ingar til að komast sem næst þeim, en gættum þess vandlega að leiðrétta stefnuna aftur. Svo- lítið kul var þá komið út flóann og var að glæðast, svo okkur kom saman um að draga upp stórsegl og fokku, en urðum þá að hætta að sveigja til skipa sem okkur þótti forvitnileg, enda var nú verra að sjá til vegna seglanna, og munaði engu að eitt risaskip sigldi okkur niður, það kom að okkur til hlés, og vissum við ekki fyrri til en þetta ferlíki gnæfði yfir okkur, en við vorum eins og lítill korktappi sem hoppaði aft- 155

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.