Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 14
boðanna, akkerinu var kippt inn,
vélin var sett á fulla ferð, og
Tálkni gamli tók við sér. Skip-
stjórinn stakk út stefnuna, sem
hann setti á við Sauðanes þótt
það sæist ekki ennþá. Seglin voru
dregin upp því vindur lá nokkuð
vel á, og báturinn gekk vel.
Þegar komið var um miðjan
Skagafjörð, þá var þar nokkuð
meiri bára þó ágætt veður, en
þessi aukna hreyfin og áreynsla
á bátinn varð til þess að lensi-
dælan vélarinnar hætti fljótlega
að hafa við lekanum, sem sýndi
að við urðum að hafa gát á öllu.
Við létum samt slag standa,
og lensuðum bátinn af og til með
handdælunni,, og ferðin sóttist
vel. Þegar nálgaðist Sauðanesið
var vindgjólan orðin meira norð-
austanstæð, og smá bára á móti,
svo við tókum seglin niður, ferð-
in minnkaði verulega við það, en
lekinn færðist heldur í aukana
við meiri hreyfingu á bátnum, en
það mátti leka mun meira til þess
að við hefðum ekki við með þil-
farsdælunni líka.
Vindur lá inn Eyjafjörðinn
svo við settum upp öll segl, lek-
inn minnkaði um leið og báturinn
hætti að erfiða á móti. Allt gekk
að óskum nema við vorum orðnir
mj ög tæpir með vatn fyrir vélina
svo við frestuðum að hita kaffi..
Að lokum var Tálkni við
bryggju á Akureyri. Haukur Pét-
ursson, sonur Péturs A. Ólafs-
sonar vai' mættur á bryggjunni
þegar við komum og Sigurjón
Jóhannesson, sonur skipstjórans,
hann kom með ýmislegt góðgæti
fyrir okkur, þar á meðal skyr
og rjóma, vitanlega frá KEA,
því allsstaðar var allt KEA, að
ókunnugum sveitarmanni fannst.
En skipstjórinn kvaðst ekki mega
vera að því að borða fyrr en hann
væri búinn að koma tuðrunni
þeirri ama á sinn stað, hún ætti
að fara vestur með skipi á morg-
un, hann hefði lofað Ólafi Jó-
hannessyni því, og það stæði hann
við. Um leið og hann sagði þetta
tók hann umrædda skinntuðru
á kné sér þar sem hann sat á
lúkarsbekknum og lagði vinnu-
lúna lófana á hana.
En nú var mín þolinmæði á
þrotum og áður en ég vissi af
var ég búinn að spyrja: ,,Hvað
er í tuðrunni?" Það kom eins og
hik á skipstjórann, en hlær svo
við og segir:
„Var ég ekki búinn að segja
ykkur það? Það v- ru mistök, en
nú skulið þið fá að sjá innihald-
ið.“
Svo fór skipstjórinn að glíma
við fyrirbandið sem var þrælhert
snæri, ég var svo spenntur að ég
bauð hníf.
„Maður leysir nú hnúta,“ sagði
skipstjórinn rólega, og hélt á-
fram að plokka sundur hnútana,
þar til tuðran var opin, og inni-
haldið kom í ljós, og það var:
Slökkvitækið úr Vatneyrar-
búðinni, tjöruhampur, allar gerð-
ir af kalföttunarjárnum, sára-
bindis og ýmislegt fleira, sem
gömlum mönnum, er báðir voru
veraldarvanir hafði komið saman
um að gott væri að hafa með
sér í svona för.
Tálkni var kominn til Akur-
eyrar, við vorum búnir að standa
við okkar hluta samningsins.
Nýlt Vinyl
SJÓMENN
Þetta merki bregst ykkur aldrei
Veljið það.- Notið VINYL-vettl-
inga í ykkar erfiða starfi.
Starf ykkar krefst sterkustu og
endingarbeztu vettlinganna.
SJÓKLÆÐAGPRÐIN HF.
Skúlagötu 51 - Reykjavík
Slmar: 12063 og 14085.
Sjómenn - Útgerðarmenn
Umboðsmenn um land allt ö® @3
BRUNABÓTAFÉLAG ISLANDS
Slmi 26055 (3 Ifnur) - Laugavegi 103
SkipamálningV Utanborðsmálning Botn-
málning - Lestalakk - Lestaborðlakk
Skipalakk - HARPA HF.
158
VÍKINGUR