Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Qupperneq 17
9'tnski|tlin iniklu
— Umskiptin að koma á þetta
nýja fallega skip voru eins og
dagur og nótt. Maður kunni sér
bókstaflega ekki læti. Við háset-
arnir komum úr 4 og 6 manna
lúkörum, þar sem engin böð voru
og menn þvoðu sér upp úr blikk-
fötum. Úr þessum vistarverum
komum við í eins manna herbergi
með öllum hugsanlegum þægind-
um. Meira að segja voru engar
rottur til að hressa upp á skapið
og engar gufuleiðslur, en það
fylgdi gufuskipunum að það voru
allsstaðar sjóðandi gufurör og
þegar sjór komst inn í vondum
veðrum, þá voru allir í ókeypis
gufubaði í lúkarnum. Mér er það
minnisstætt að svo litlir voru
lúkararnir á Reykjafossi. að það
gat aðeins einn klætt sig í einu,
hinir urðu að bíða.
— Nú fengum við sem sagt
eins manns herbergi, böð og
flottan matsal' og setustofu.
Meira að segja höfðum við vaska
til að þvo okkur úr. Þetta var
mikill munur.
Þetta kunni ef til vill að þykja
smáatriði og þótt okkur liði vel
á þessum gömlu, þá var það fyrst
og fremst af því að við þekktum
ekki annað og eitt af því, sem
mestar framfarir hafa orðið í til
sjós, en einmitt aðbúnaður hjá
skipshöfninni.
Nú ég er þarna á Lagarfossi
og fór í Stýrimannaskólann, en
sigldi á sumrin eins og gengur.
Fyrst varð ég stýrimaður á Fjall-
fossi, en þar var ég 3. stýrimað-
ur. Ráð hafði verið fyrir því
gert, að ég yrði 3. stýrimaður
á Reykjafossi, nýja, þessum
ítalska, sem var mjög sérkenni-
legt og merkilegt skip, sem Eim-
skipafélagið keypti fullsmíðað.
Mið-Reykjafoss köllum við hann.
Á Reykjafossi var ég í eitt ár,
en fór síðan á Tröllafoss. Síðan
var ég á ýmsum skipum félags-
ins og smá hækkaði, eins og til-
efni voru til, unz ég varð skip-
stjóri á Tungufossi, 12. janúar
1972, en ég byrjaði að leysa af
sem skipstjóri hjá félaginu í des-
ember árið 1965.
Minni skip — fíAari forrtir
— Nú þykjast menn skynja
einhverja breytirigii á rekstrar-
forvvi farskipa. Það er færra fólk
ofj að ef til vill séu skipin ekki
eins stór og glæsileg og áður. Er
þetta ríkjandi þróun í verslunar-
flota íslands?
Frysti- og kælitæki
KÆLIIMG HF.
Ármúla 7 — Sími 32150
ÚTGERÐARMENN -
BÁTAEIGENDUR!
Jafnan fyrirliggjandi
AV-15 SJÓNVARSPLOFTNET
FYRIR SKIP OG BÁTA
AV-15 breiðbands sjónvarpsloftnet með
innbyggðum loftnetsmagnara tekur jafnt á
móti öllum sjónvarpsrásum, frá rás 2—11
(auk UHF-rása). Loftnetið er ekki
stefnuvirkt, heldur hefur sama móttöku-
næmleika frá öllum áttum og þarf því ekki
að snúa því.
Til verndar fyrir tæringu og öðrum
skemmdum, eru loftnet og magnari sam-
byggð í vatns- og höggþéttum hjálmi úr
plastefni.
Straumgjafar: Riðspenna 220 v.
Jafnspenna 24-30-220 v.
Mjög hagstœtt verð.
Sjónvarpsmiðstöðin sf.
- ^ þÓRSGÖTU 15
12880
VIKINGUR
161