Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 30
FISKIMJÖL TIL MANNELDIS Matur frá iðnaðarfiskverksmiðjum er framtíðar- viðfangsefni Norðmanna — Norðmenn gætu fætt 70 milljónir manna Dr. Gudmund Sand, forstjóri Rannsóknastofnana norska fiskiðnaðarins. Norse Fish Powder nýtur vin- sælda í mörgum þróunarlöndum. Við verðum að knýja fastar á með skipulagðan samvinnugrund völl um rannsóknir og sölu. Á almennum fundi, sem rann- sóknarstofnun norsku síldar- mjölsverksmiðjanna g’ekkst fyrir í Bergen í haust, flutti forstjóri stofnunarinnar Gudmund Sand, fróðlegt erindi, sem hann kallaði „Matur frá iðnaðarfiskverk- smiðjum er framtíðarviðfangs- efni Norðmanna“. Erindi dr. G. Sand verður rak- ið hér í stórum dráttum vegna þess að hann gefur nokkuð glögga grein fyrir þróun þeirra mála í Noregi og áhuga hans fyrir því, að orskar rannsóknarstofnanir í fiskiðnaðinum sameinist um stór- átak í því að framleiða fiskimjöl til manneldis til handa þeim mannmörgu vanþróuðu þjóðum, sem standa á barmi hungurs vegna skorts á fjörefnaríkri fæðu. Ræðumaðurinn hóf erindi sitt með því að minna á eina af þeim sönnu frásögnum úr síðustu heimsstyrjöld þegar landsmenn börðust upp á líf og dauða við að bjarga sér frá hungurdauðanum. I þessu tilfelli var það síldar- mjölssekkur sem kom við sögu. Könnunarflugvél Bandamanna var skotin niður yfir hálendi Noregs og flugmennirnir tveir björguðu lífi sínu með fallhlíf- um. 1 fjalllendi Noregs var fátt til matfanga og sulturinn svarf að. Þá varð það þessum flótta- mönum til lífs, að þeir fundu síldarmjölssekk falinn í selkofa. Þeir hikuðu ekki við að seðja hungur sitt með síldarmjölinu. „Nota flest í neyðum skal . . .“ Og ekki nóg með það. Þeir áttu margar dagleiðir ó- farnar að sænsku landamærun- um og án frekari umsvifa tóku þeir síldarmjölið á bakið, neyttu þess og drukku norskt lindarvatn með. Þeir náðu sænsku landamærun- um heilir á húfi. Síldarmjölssekknum áttu þeir líf sitt að launa. Hann bjargaði þeim frá hungurdauða. Síldiiriiijöl gutur bjargaö inaimslifuni Þessi saga og aðrar viðlíka, gefa okkur óneitanlega tilefni til hugleiðinga: Síldarmjöl getur bjargað mannslífum. Og þá erum við komnir beint að aðalviðfangsefninu, sem vek- ur spurningar um möguleika á kerfisbundinni og skipulagðri nýtingu verksmiðjufisks til manneldis. Saga þessi og fleiri svipaðs eðlis frá öðrum tilefnum færa oss ótvíræð sannindi um, að síld- armjöl getur bjargað mönnum frá hungurdauða. Og þá erum við komnir að kjarna málsins, sem vekur spurn- ingar um það, hvernig megi, á kerfisbundinn hátt, skipuleggja nýtingu verksmiðjufisks til manneldis. Áhuginn fyrir þessu vaknaði VÍKINGUE 174

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.