Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 10
& 58?
Matt: 1: 21—23
Nafnið Jesús þýðir: Drottinn er Frels-
ari. Áður fyrr þýddu nöfn meira en bara
nafn. Menn fengu nöfn samkvæmt þeirra
hegðun, lunderni eða annars sem gat
komið inn í líf þeirra.
Við kynnumstþessari nafnagift ennþá í
þriðja heiminum. Menn fá ekki nöfn eftir
afa eða einhverjum skyldmennum heldur
eftir hvaðþeir eru.
Við sjáum hér í jólaguðspjallinu að
Jesús fékk nafn sitt vegna þess hlutverks
sem honum var gefið. — Hann kom sem
frelsari. — „Þú skalt kalla nafn hans
Jesús, því að hann mun frelsa lýð sinn frá
syndum þeirra, “ en það þýðir að hann vill
endurnýja það samband sem var á milli
Guðs og manna. í honum er á öllum tím-
um,frá kyni til kyns, undirstrikað að Guð
er með oss, eins og stendur í textanum,
„nafn hans munu menn kalla Immanúel,
sem er útlagt: Guð er með oss“. Vanda-
málið er ekki hvernig við eigum að gera
Guð hliðhollan okkur, því hann er það,
heldur hvort við viljum leyfa Guði að vera
með okkur.
Þú skalt kalla nafn hans Jesús . . .
Við höfum einnig nöfn, ég og þú. Þýðir
þitt og mitt nafn eitthvað ákveðið fyrir
þeim sem við umgöngumst? Við vitum
hvernig fólk getur talað. Það er stundum
sagt: „Hann er hrœðilegur“ eða „hann er
sérstakur“. Þannig tengjum við manninn
við nafn hans og það þýðir eitthvað
ákveðið fyrir okkur þegar við heyrum
nöfn manna. Þannig er það einnig þegar
fólk heyrir Jesúnafnið nefnt, þáþýðir það
eitthvað ákveðið fyrirþað.
Fyrir okkur sem lifum á íslandi þá
tengjast jólin þessu nafni á alveg sérstak-
an hátt. An þessa nafns œttum við engin
jól. Jatan, fjárhúsin, Betlehemsvellirnir,
englarnir og hirðarnir tengjast þessu
nafni og mynda ógleymanlega sögu sem
gagntekur okkur sérstaklega á jólunum.
Ó, Jesúbarn, þú kemur nú í nótt,
og nálœgð þína ég í hjarta finn.
Þú kemur enn, þú kemur undra hljótt,
í kotin jafnt og hallir fer þú inn.
Helgi Hróbjartsson
10
VÍKINGUR