Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 17
samninga um kaup og kjör yfir-
manna á kaupskipum, lýsa undir-
rituð útgerðarfélög yfir stuðningi
sínum við almenna endurskoðun
á lífeyrismálum sjómanna.
Útgerðir munu leitast við að
boða brottfarir skipa með góðum
fyrirvara og tilkynna það áhöfn.
Einnig munu þær leitast við að
láta boðaðan brottfarartíma
standast.
Loftskeytamenn
Undirritaðar útgerðir lýsa því yf-
ir, að þær muni leitast við að gefa
nýútskrifuðum loftskeytamönn-
um kost á því, eftir því sem að-
stæður leyfa, að starfa launalaust
með vönum manni í allt að tvo
mánuði að afloknu prófi.
Skipstjórnar-
menn
Undirritaðar útgerðir munu
leitast við að veita skipstjórum
sem þess óska og starfað hafa sem
slíkir hjá útgerðinni í 10 ár eða
lengur, leyfi án launa í allt að einu
ári, enda gildi almennar reglur um
uppsagnarfrest einnig í leyfistím-
anum.
Yfirlýsingin um upp-
gjör launa verður grein
í samningunum
10.5.3
Þegar útgerð telur sig ekki geta
gert upp laun vegna athugasemda
sinna við launaskýrslu frá skipi,
mun hún endursenda þeim aðila,
sem staðfest hefur skýrsluna með
undirskrift sinni, hana með at-
hugasemdum sínum. Jafnist ekki
ágreiningur eftir framangreindum
leiðum, skal senda viðkomandi
stéttarfélagi afrit af skýrslunni
með athugasemdum útgerðarinn-
ar.
Breytingar á Stýri-
manna og vélstjóra-
samningi
Risna hækkar um 10%. Endur-
skoðun verði 4 sinnum á ári í stað
2 áður.
Breyting og umorðun ákvæða
um vinnutíma á hafnarvakt.
Ákvæði þessara greina orðist svo:
Aðalregla:
11.1 Vinnutími
11.1.1
Þegar hafnarvaktir eru staðnar,
telst vinnutími yfirmanna vera 8
klst., frá kl. 08.00 til 12.00 og frá
kl. 13.00 til 17.00.
Vinna á öðrum tíma samkv. ósk
útgerðar greiðist með yfirvinnu-
taxta A, nema þegar um er að
ræða stoppitörn samkv. 11.4.1.
Það segir að stýrimenn/vél-
stjórar vinna samkvæmt aðal-
reglu: allir frá kl. 08.00—12.00 og
13.00—17.00. Séu aðstæður fyrir
hendi að mati yfirmanna geta þeir
óskað eftir skiptingu á vinnu-
tíma. Slík skipting fer því aðeins
fram að yfirmenn óski eftir henni
og skipstjóri/ og yfirvélstjóri
heimili hana.
11.2. Verkaskipting
11.2.1
Þegar hafnarvaktir eru staðnar og
aðstæður leyfa að mati skipstjóra
megi stýrimenn skila 4 klst. á
dagvinnutímabilinu kl. 08.00 til
12.00 eða 13.00 til 17.00 og skipta
á hádegi, þá ganga stoppitarnar-
tímar upp í það sem vantar á 8
klst.
11.2.2
Þegar stýrimenn skiptast á um að
standa hafnarvaktir skal vinnu-
fyrirkomulag vera: Á tveggja
stýrimanna skipum skiptast 1. og
2. stýrimaður á, en á þriggja stýri-
manna skipum skiptast 2. og 3.
stýrimaður á.
í þjónustu fiskveiðu og
Pétur 0 Nikulásson
FYRIR FISKIÐNAÐINN:
DA| Pétur 0 Nikulásson
M VBF B VÍS TRVGGVAGÖTU 8 SÍMAR 22650 20110
VÍKINGUR
17