Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Side 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Side 19
11.2.3 í Reykjavík, Hafnarfirði, Kefla- vík, Njarðvík, Gufunesi, Skerja- firði og Straumsvík, skiptast 1., 2. og 3. stýrimaður á um að standa hafnarvaktir á þriggja stýrimanna skipum. Öll álög og tillegg önnur en fæðispeningar hækka í samræmi við hækkun grunnlauna. Ég hef gert hér stutta grein fyrir öllum helstu breytingum sem orðið hafa á aðalkjarasamningi farmanna. Baldur Halldórsson form. samninganefndar F.F.S.I. Baldur Halldórsson Yfirlýsing ríkisstjómar íslands við afgreiðslu kjarasamninga Far- manna- og fiskimannasambands íslands í desember 1980 1. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því, að sett verði reglu- gerð um „sleppibúnað“ eða sambærilegt öryggiskerfi fyrir gúmbjörgunarbáta. Halldór Oddsson, skipstjórí. VÍKINGUR 2. Ríkisstjórnin mun sjá til þess að framkvæmd verði hið fyrsta gildandi reglugerð um neyðar- senda um borð í gúmbjörgun- arbátum. 3. Ríkisstjórnin mun á samvinnu við FFSÍ beita sér fyrir því, að tryggt verði aukið eftirlit með því, að gildandi reglugerð um öryggisloka við línu- og neta- veiðar verði framfylgt. 4. Veðurþjónusta Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir aukinni og bættri veður- þjónustu á siglingaleiðum ís- lenskra skipa og umhverfis landið. Útsendingum veður- spár frá strandarstöðvum verði fjölgað, storm- og ísviðvörun- um verði sérstaklega útvarpað frá strandarstöðvum og út- sending veðurkorta verði haf- in. 5. Lífeyrismál Auk þess, sem þegar hefur ve- rið ákveðið í lífeyrismálum mun ríkisstjórnin í samráði við hagsmunaaðila beita sér fyrir því, að þeir sem sjómennsku stunda verði tryggðir í einum lífeyrissjóði. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því, að viðun- andi lausn geti fengist í ið- gjaldagreiðslumálum bátasjó- manna. I því skyni verði sett á laggirnar nefnd aðila og ríkis- valds er skili áliti fyrir janúar- lok nk. Ríkisstjórnin mun kanna hvort eðlilegt sé í tengslum við lækkun lífeyrisaldurs sjó- manna í almannatryggingum, að sama regla gildi hvað rétt sjómanan varðar í lífeyrissjóð- um, og hvaða kostnaðarauka slíkt myndi hafa í för með sér. 6. Ríkisstjórnin mun hafa samráð við Farmanna- og fiskimanna- sambandið við endurskoðun laga um atvinnuleysistrygg- ingar. 7. Ríkisstjórnin samþykkir, að Farmanna- og fiskimanna- sambandið fái fulltrúa í nefnd þá, sem endurskoða skal or- lofsmál launþega, sbr. yfirlýs- ingu til Alþýðusambands ís- lands í október sl. Reykjavík 6. desember 1980 Svavar Gestsson Steingrímur Hermannsson 19

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.