Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Qupperneq 23
ann í einu. Aflinn í þessu hali
reyndist vera um 1 tonn, sem telst
nú víst vera með því betra.
Veiðarfærin hafa breyst
Veiðarfæri það, sem nú er notað
við rækjuveiðar í Djúpinu, líkist
ekki mikið því veiðarfæri sem
Olsen og Syre notuðu við upphaf
rækjuveiðanna á fjórða áratug
aldarinnar. Fyrstu rækjunætumar
voru mjög litlar, u.þ.b. 6 metrar á
lengd að pokanum meðtöldum og
ekkert op var haft á pokanum til
losunar, heldur var rækjan háfuð
úr trollinu með handháf. Á fót-
reipi nótanna var grastó og á því
nokkrar steinvölur svona u.þ.b.
400 gr. stykkið og voru þyngdar-
hlutföllin talin svo viðkvæm að
menn veltu einni steinvölu í hendi
sér og veltu því fyrir sér hvort
óhætt væri að láta hana á fótreipið
eða ekki. Hlerarnir voru tréhlerar
með jámskó neðan á og vógu þeir
um 50 kg. Það var víst auðvelt að
halda á þessum nótum undir ann-
ari hendi, en samt fiskuðu menn
nú í þetta og vitað er um 10
mínútna höl með þessum nótum,
sem gáfu 1200 kg. afla.
Til samanburðar má geta þess
að þær nætur, sem nú eru notaðar
eru um það bil 20 metra langar frá
bobbingamiðju og aftur í poka-
enda og hafa miklu stærra op.
Hleramir hafa líka stækkað eru nú
svona 250 kg. að þyngd.
Rækjuvinnsla
Fljótlega eftir að Olsen og Syre
náðu árangri við rækjuveiðarnar
fóru ísfirðingar að velta því fyrir
sér á hvern veg best væri að gera
rækjuna að markaðshæfri vöru.
Eins og við var að búast komu
ýmsar hugmyndir upp á yfirborð-
ið og þar hafði erindreki Fiskifé-
lagsins að sjálfsögðu sitt til mál-
anna að leggja og skulum við nú
grípa aftur niður í skýrslu hans
fyrir tímabilið ágúst til desember
1935, þar segir m.a.: „Eftir þeirri
VÍKINGUR
Pokinn kominn á síðuna.
reynslu, sem þegar er fengin,
virðist gnægð af kampalampa hér
í Djúpinu. En þá er það markaðs-
skilyrðin, sem bresta. Þetta sem
veiddist hér í sumar, var reynt að
selja innanlands og í farþegaskip-
in, en alltof lítið seldist. Til þess
unnt verði að stunda þessar veiðar,
þarf að setja á stofn niðursuðu í
þessu skyni. Eftir þeim upplýsing-
um, sem þegar eru fyrir hendi, eru
þessháttar niðursuðutæki ekki
ýkja dýr. Fiskimálanefnd hefur
haft mál þetta til athugunar, fyrir
áskorun bæjarstjórnarinnar hér,
og hefur bæjarstjórnin nýlega
samþykkt að leitast eftir allt að 25
þúsund króna láni hjá Fiskimála-
nefnd til stofnsetningar niður-
suðuverksmiðju o.fl. í þessu skyni.
Er þegar farið að ræða um fé-
lagsskap í þessu skyni, en ekki
mun þó fastur rekspölur kominn á
það mál ennþá. Geta má og þess
hér, að ýmsir, er notað hafa
kampalampann til beitu, telja