Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Síða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Síða 25
Halldór ánægður á svip yfir góðum afla. manna, m.a. í bæjarblöðunum og þar bar mest á Skutli, málgagni kratanna, og Vesturlandi, mál- gagni sjálfstæðismanna. Til gam- ans skulum við grípa niður í ein slík orðaskipti nokkru eftir að rækjuverksmiðjan tók til starfa og sjáum fyrst hvað Skutull hefur um málið að segja 25 júlí 1936 undir fyrirsögninni: „Viðleitni til nýrrar iðju og viðtökur íhaldsblaðanna“. I greininni segir m.a.: „Þó ekki hafi orðið annars vart hér heima en bæjarbúar bæru hlýjan hug til hins uppvaxandi iðnaðarvísis, sem bæjarstjóm stofnaði til með rækjuverksmiðjunni, þá er þegar orðið sýnilegt, að einhver eða ein- hverjir íhaldsmenn ætla sér að reyna að drepa fyrirtækið í fæð- ingunni. Fyrir nokkrum dögum birti Morgunblaðið svívirðinga- grein um rækjuverksmiðjuna eftir heimildum héðan að vestan. þar er talað um yfirvofandi verkfall, vinnuþrælkun, kaupkúgan og kaupgjaldssvik kratabroddanna á ísafirði í sambandi við verksmiðj- una. Er hér viðlíka hóflega af stað farið með róginn eins og þegar mest gekk.á fyrir Sigurði Krist- jánssyni með að rægja kúabú bæjarins.“ VÍKINGUR Vesturland, málgagn sjálf- stæðismanna, brá skjótt við, því 1. ágúst 1936 birtist í því blaði grein undir fyrirsögninni: „Leiðrétting- ar á blekkingum sósabroddanna um þjóðnýtingarrækjurekstur sinn.“Upphafgreinarinnarhljóðar svo: „Krabbameistarinn Hannibal Valdimarsson belgist út allt að spreng, yfir þjóðnýtingarrækju- rekstri sósabroddanna hér í síðasta Skutli. Finnst honum svo mikil helgi hvíla yfir þessum vanskaplingi þeirra, að goðgá sé að minnast hans opinberlega. Er það rógur að segja satt? Krabbameistarinn lætur svo, að það sé rógur að segja satt um rekstur þennan. Hann um það. En sæmra væir honum, að hrekja með rökum frásagnir Vesturl. en belgja sig út með þeim hrokavindi sem ætlar að sprengja hann sjálfan. í frásögn þeirri sem Vesturl. hefir flutt af rekstri þessum er ekkert ofsagt, en margt ósagt af því, sem rétt er að almenningi væri kunnugt. Krabbameistarinn reynir að biðja sér miskunnar frá réttlátri hegningu með þeirri afsökun, að sósabroddamir séu hér með upp- vaxandi iðnaðarvísi, sem allar skammir verði að þola þangað til hann þroskast. En þessi afsökun er ógild. Hlut- deild sósanna í stofnun rækju- verksmiðjunnar er ekki starf brautryðjandans, það er þeir Norðmennirnir O.G. Syre og Simon Olsen sem þar eiga heiður- inn, heldur hitt að draga annara feng á land.“ Margt hefur nú breyst í rækju- vinnslunni frá því árið 1936, nú sjá vélar um skelflettingu (eða „pill- un“) rækjunnar og mest að rækj- unni er nú fryst í stað niðursuðu áður. Rækjupillunarvél var fyrst notuð árið 1956 í rækjuverksmiðju Guðmundar og Jóhanns á ísafirði og síðan árið 1970 hefur rækja ekki verið handpilluð í ísfirskum rækjuverksmiðjum. Tilkoma rækjupillunarvéla jók afkastagetu verksmiðjanna mikið frá því sem áður var og er þessi iðnaður ekki nánda nærri eins mannaflsfrekur og var á fyrstu árum og áratugum rækjuveiða hér við land. Míargt hefur breyst Segja má að 50 ára saga rækju- veiða hér við land hafi einkennst af miklum breytingum, sem dæmi má nefna að það er ekki fyrr en á sjöunda áratug aldarinnar sem farið er að veiða rækju annars staðar en i ísafjarðardjúpi og á Amarfirði. Úthafsrækjuveiðar hafa aukist mikið á síðustu árum og á síðastliðnu sumri bárust 1200 lestir af rækju af úthafsmiðum á land á ísafirði. Þessar veiðar hafa að sjálfsögðu lengt starfstíma rækjuverksmiðjanna, því rækju- veiðar í Djúpinu eru einungis stundaðar yfir vetrartímann. Rækjuveiðar í Djúpinu hafa líka breyst mikið á 50 árum, aukist úr nokkrum tugum tonna árið 1936 í það að vera 2500 lestir á ári að jafnaði síðustu árin, þær eru stundaðar af stærri bátum en áður var og þeim hefur einnig fjölgað. 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.