Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 28
Var einokunin lögð niður árið 1787?
Flest höfum við heyrt það. En því miður er út-
flutningsverslun lan'dsmanna enn í dag að nokkru
leyti á sama stigi og á tímum Hörmangarafélagsins
alræmda.
Nú er það ekki Hólmfastur á Brunastöðum, sem
er dæmdur fyrir að selja þrjár löngur, tíu ýsur og
tvö sundmagabönd til Keflavíkurkaupmannsins í
stað þess að selja „hinurn rétta" kaupmanni í
Hafnarfirði.
Nýtískulegar aðferðir
Nú er reynt að beita nýtískulegum aðferðum:
Framleiðendur sektaðir fyrir að selja öðrum en
„hinum stóru". Reynt að hóta viðskiptaaðilum
innan lands og utan. Skipafélög þvinguð til að taka
ekki vörur til flutnings. Reynt að beita stjórnmála-
menn þrýstingi og þvingunum og reynt að þeita
áhrifum í gegnum fjármálakerfið.
Frystihúsamenn og aðrir framleiðendur sjávaraf-
urða!
Viö bjóöum yður að taka til sölumeðferðar
framleiðsluvörur yðar án nokkurra skuldbindandi
„einokunarákvæða". Við getum reyndar ekki
„millifært" frá einni tegund eða pakkningu til
annarrar né skilað útsöluverði erlendis án þess að
draga frá eðlilegan flutnings- og sölukostnað, né
möndlað með „uppbætur". (Þær greiðast strax
hjá okkur). En við bjóðum yður að taka þátt í
frjálsum viðskiptum að hætti siðaðra manna og að
byggja upp aðhald fyrir ,,hina stóru".
Munið: Flestir framleiðendur sjávarafurða í
heiminum standa utan einokunarsamtaka.
ÍSLENSKA 3&
UTFLUTNINGS-
MIÐSTÖÐINHF.
EIRIKSGATA 19- RO.BOX 764 • 121 REYKJAVÍK
SÍMAR :(91) 21296 & (91)16260
Öll blikksmíði sú besta,
sem völ er á: Gæði, verð og þjónusta,
sem stenst allan samanburð
Blikksmiðjan Vogur hf.
Auðbrekku 65 Pósthólf 179 Kópavogi
Sími40340
28
VÍKINGUR