Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 29
Grásleppukarlar stofna samtök — rætt við Guðmund Lýðsson, framkvæmdastjóra samtakanna — Því hefur stundum verið haldið fram bæði í gamni og alvöru, að sjómenn væru sú stétt manna hér á landi sem hvað erfiðast væri að fá til að standa saman að ýmsum kjara- og félagsmálum sem varðar þá sjálfa. — Einkum væru það smábátaeigendur sem ættu erfitt með að standa saman. Þeir vildu bara fá að dúlla á sínum trillum í friði, óháðir öllu því sem kallast mætti félagsleg réttindi. — En af ölum sundruðum væri þá grásleppukallar sundr- aðastir. Þeim liði best hver í sínu homi þar sem þeir gæut strokið netum sínum og baujum; laumast á sjóinn þegar eng- inn sæi. — Það eina sem sýndi samstöðu grásleppukalla væri sam- eiginlegar áhyggjur þeirra þegar illa viðraði. — En nú hafa grásleppukallar sýnt og sannað að þessi speki er ekki skotheld fremur en svo margt annað sem sagt er um sjónmenn manna á meðal. — Þeir hafa nú gengið fram fyrir skjöldu og stofnað með sér landsamtök sem nefnast „Samtök grásleppuhrognafram- leiðenda. — Aðal hvatamaður að stofnun samtakana var Guð- mundur Lýðsson sem nú er framkvæmdastjóri S.G.H.F. — Þessi samtök eru ekki aðeins merkileg fyrir þá sök að það eru grásleppusjómenn sem hafa stofnað þau heldur marka þau tímamót í hagsmunabaráttu sjómannastéttarinn- ar, því aldrci fyrr hafa smábátasjómenn stofnað með sér samtök á jafn breiðum grundvelli. Samtök grásleppuhrognafram- leiðenda hafa aðsetur sitt í Síðu- múla 37, í húsnæði Sölustofnunar lagmetisiðnaðarins. Blaðamaður kom að máli við Guðmund Lýðs- son framkvæmdastjóra, sem jafn- framt er eini launaði maðurinn á vegum S.G.H.F. Guðmundur var spurður að því hver aðdragandi að stofnun þess- ara samtaka hefði verið; hvort VÍKINGUR hann hefði bara sest niður í djúpan stól, horft út um gluggann og ákveðið að stofna svo sem ein samtök, svona til að gera eitthvað? Guðmundur hlær og tekur bakföll í stólnum. — Nei, ekkivar það nú þannig. Frá árinu 1976 hafði ég unnið hjá íslensu útflutningsmiðstöðinni og kynnst högum grásleppusjó- manna í gegnum starf mitt. Mér fannst brýna nauðsyn bera til að stofna samtök sem tryggðu hag og réttindi þessara manna og að sjálfsögðu kannaði ég jarðveginn hjá sjómönnum um allt land, áður en samtökin voru endanlega stofnuð. Mér var snemma ljóst að mikil þörf var á slíkum samtök- um, því grásleppusjómenn hafa oft á tíðum verið mjög afskiptir. Starf þeirra er ótryggt og þeir hafa fram til þessa búið við ákaflega lítið öryggi. Frá því 1964 var lagt 6% útflutningsgjald á grásleppu- hrognin og runnu þeir peningar í sjóðakerfi sjávarútvegsins allar götur fram til ársins 1972, að þessi 6% fóru í Þróunarsjóð lagmetis- iðnaðarins. Þar með var búið að kúpla grásleppusjómönnum út úr öllum sjóðum og þeir stóðu upp réttindalausir með öllu. I þessi ár hafa þeir greitt um 400 milljónir í Þróunarsjóðinn og sér hver maður hvað hægt hefði verið að gera við þá peninga, hefðu sjó- menn sjálfir mátt ráðstafa þeim. Það átti að hækka skattinn uppí 12% Þessar reglur áttu að ganga úr gildi um áramótin 1977—78 og vonuðust menn til að eitthvað rættist úr eftir það. En í september 1977 er lagt fram nefndarálit um stöðu lagmetisiðnaðarins og þró- un hans, og þá fer nú fyrst að káma gamanið. í þeirri skýrslu er lagt til að sett verði svokallað fullvinnslugjald á grásleppu- hrognin. Það gjald átti að verða 6%, þannig að nú átti skatturinn 29

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.