Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 31
Bjöm Guðjónsson formaður S.G.H.F. setur bát sinn við Ægissíðuna í Reykjavík. ekki haft aðgang að Aflatrygg- ingasjóði eða neinu sliku. Breytist þetta núna? — Já, hér verður mikil breyting á. Að vísu tryggjum við ekki skip- ið. Eins og allir vita eru margir sem stunda grásleppuveiðar ein- göngu sem tómstundagaman. Við viljum koma í veg fyrir að menn rjúki til og fái sér sportbát og eitt net, fleygi því út og þar með fái þeir bátinn tryggðan, sjálfan sig, áhöfn og allt. Við tökum hóptryggingu fyrir alla þá sem sækja um veiðileyfi. í þessum tryggingum eru innifaldar líf-, slysa-, og örorkutrygging áhafnarinnar. Þetta er í samræmi við aðrar sjómannatryggingar sem í gildi eru í landinu. Eins og málum er háttað í dag, hafa menn engar tryggingar.. .ja ekki nema þeir sjái sjálfir um að tryggja sig og slíkt er nú oft látið sitja á hak- anum. Kæligeymslan er stóra málið í þessum lögum er líka gert ráð fyrir að við greiðum í Fiskveiði sjóð, og þar með opnast okkur leið í þann sjóð. En stærsta málið af öllum stór- um er kæligeymsla sem samtökin ætla að reisa í vesturhöfninni hér í Reykjavík, en það er ekki enda- lega búið að ganga frá lóðamál- um. Tilgangurinn með skemmu- byggingunni er eiginlega þríþætt- ur. í fyrsta lagi skapast þarna að- staða til að geyma hrogn. Víða úti á landi er geymsla á verkuðum hrognum mikið vandamál, sér- staklega eftir að farið var að salta meira í plasttunnum. Þær eru við- kvæmari fyrir hitabreytingum heldur en trétunnumar. Hug- myndin er að flytja öll hrogn hingað til Reykjavíkur og með því móti getum við tryggt fyrsta flokks gæði, sem við verðum að halda, því nú erum við búnir að fá VÍKINGUR Kanandamenn í samkeppni við okkur á mörkuðum erlendis. í öðru lagi geta sjómenn fengið afurðalán úr á framleiðslu sína þegar öll hrognin eru komin á einn stað. í þriðja lagi verður hægt að fylgjast með því að rétt magn sé í tunnunum. Það gerum við með því að taka stikkprufu frá hverjum aðila sem sendir okkur hrogn, því eins og þú veist þá hefur hver maður sína aðferð við að verka hrognin og oft er misjafnthlutfall á milli pækils og hrogna, eftir því hvar þau hafa verið verkuð. Tryggjum fyrsta flokks gæði Við tökum sem sagt prufur, rannsökum þyngdina í hverri tunnu, könnum pækilmagnið og gerum gerlaprufur. Komi það í ljós að pækillinn er ekki í réttu hlutfalli hjá einhveijum, verður skift um pækil í öllum tunnunum frá viðkomandi. Með þessu móti tryggjum við fyrsta flokks gæði, sömu gæði yfir allt landið og rétt magn sé í tunn- unum. Oftar en ekki hefur verið nokkrum kílóum of mikið í hverri tunnu þegar hún er komin í kaup- anda, og er það ekki svo lítið magn þegar á heildina er litið en sjó- menn fá bara greitt fyrir ákveðna þyngd, allt sem fram yfir hefur verið, hafa þeir því gefið kaup- endum. — En hafa menn ekki litið það homauga að vera að flytja hrognin utan af landi, fyrst til Reykjavíkur og síðan út, í stað þess að taka þau beint um borð í flutningaskip eins og tíðkast hefur hingað til? Jú, að vísu hafa menn velt þessu svolítið fyrir sér, en ég held að þetta sé það sem koma skal. í sumar sem leið fluttu skipafélögin 1 dæmis hrognin endurgjaldslaust til reykjavíkur hvaðan sem var af landinu, með því skilyrði að þau fengju að flytja þau úr landi. Hagsmunamál fyrir landsbyggðina Sumstaðar hafa menn þurft að leggja í mikinn flutningskostnað til að koma framleiðslu sinni í veg 31

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.