Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Side 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Side 37
tunnumar. Þá er sú hætta úr sög- unni. Sumstaðar úti á landi er að vísu erfitt að koma við plasttunnum vega plássleysis, því þær eru ekki eins sterkar og trétunnumar, við- kvæmar fyrir hitabreytingum, en þá erum við aftur komnir að skemmubyggingunni. Hún fyrir- byggir að hrognin skemmist þótt komið sé fram á sumar og hlýnað hafi í verðri, svo fremi menn komi hrognunum óskemmdum í kæligeymsluna. Síðastliðið ár skemmdust á annað hundrað tunnur víðs vegar um landið vegna þess að ekki var hægt að koma hrognunum í kælda geymslu. Slíkir hlutir verða úr sögunni þegar skemman er kom- inn upp. í dag er skemman okkar stóra hagsmunamál og þegar hún verð- ur tilbúin er ég sannfærður um að grásleppukallar láta ekki staðar numið, segir Guðmundur Lýðs- son að lokum. Það er í mörgu að snúast á skrifstofunni hjá Guðmundi. Fyr- ir dyrum er aðalfundur samtak- anna, svo að blaðamaður ákveður að tefja hann ekki lengur og láta þetta gott heita; þakkar fyrir sig og óskar grásleppuköllum til hamingju með þessi merkilegu hagsmunasamtök. Þau brostu hvort til annars yfir þveran veitingasalinn. En áður en maðurinn gat fylgt sigri sínum eftir, fraus brosið skyndilega á vörum konunnar og hún lét sem hún sæi hann ekki. Sá vonsvikni sneri sér að manni, sem stóð nálægt borði hans og var að kveikja sér í vindli: — Kven- fólk er sannarlega skrítið, finnst þér ekki? Þessi fallega kona þama hinumegin í salnum var að daðra við mig rétt áðan, en nú er hún að sjá eins köld og ísklumpur. — Já, samsinnti hinn. — Kon- an mín er afar óútreiknanleg. ★ Maður kom inn í rakarastofu. — Hve margir eru á undan mér? spurði hann. — Fimm á undan þér, ansaði rakarinn. — Þakka, sagði maðurinn og labbaði út. Daginn eftir kom hann aftur. VÍKINGUR — Hve margir á undan mér? spurði hann. — Sex sagði rakarinn og kauði labbaði út. Þessu hélt áfram í viku. Að lok- um gerðist rakarinn forvitinn og sendi lærlinginn til að elta mann- inn. — Ég vil fá að vita, hvert þessi fábjáni fer héðan. Daginn eftir fór lærlingurinn í humátt á eftir náunganum. Kom svo von bráðar aftur til stofunnar. — Gastu komist að því, hvert hann fer? spurði rakarinn. — Já, sagði pilturin. — Beint heim til þín!

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.