Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Side 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Side 44
Gleðikonan og þjónninn Ein af gleðikonum Nýhafnar- innar í Kaupmannahðfn kom inn á bar í Nýhöfninni og bað þjóninn að skipta fyrir sig tíu dala seðli. Þjónninn athugaði seðilinn vandlega. Ég vil gjarnan skipta fyrir þig seðlinum, en því miður er hann falsaður, systir góð. Þegar hún fékk þessa vitneskju rak hún upp ægilegt öskur og hrópaði: Mér hefur verið nauðgað! ★ — Það er viðkynningin, sem er undirrót flestra hjónabanda, sagði faðirinn spekingslega. — Hnu? — Það gerist þannig: Úr þeim hópi manna, sem oftast koma í heimsókn, velur stúlkan sér nátt- úrlega mannsefni. — Þá er ég hrædd um, að dóttir okkar sé dæmd til að giftast rukk- ara, sagði konan. ★ Silli: — Geturðu ímyndað þér þennan náunga að bjóða okkur 9 dollara fyrir bílinn! Villi: — Hann hlýtur að vera meira en lítið klikkaður. Við skulum nota okkur það í hvelli. ★ María litla var veik, og hún var sífellt að nauða í mömmu sinni um að fá kettling. Það kom á daginn, að senda þurfti barnið á spítala til upp- skurðar. Mamma hennar lofaði henni, að ef hún yrði þæg og hug- hraust, skyldi hún fá fallegasta kettling, sem hægt væri að ná í. Þegar María litla var að ranka við sér eftir svæfinguna, heyrði hjúkrunarkona hana muldra fyrir munni sér: „Það er ekki tekið út með sældinni að eignast kettling.“ ★ Þessir Sjálendingar Hann hét Kersten og var fjög- urra ára og átti heima á Sjálandi. Á heimilinu var frænka hans sem átti heima á Jótlandi. Kom þeim vel saman daglega við leik. Kvöld nokkurt er þau voru óvenju óhrein kom mæðrum þeirra saman um að taka þau inn í þvottahúsið og þvo þau þar. Þegar búið var að afklæða þau sagði Kersten við móður sína: Ekki hélt ég að svona mikill mun- ur væri á Sjálendingum og Jótum. 44 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.