Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 57
Nýtt tæki frá Magnavox:
Gerir flestum kleift
aö sigla eftir gerfitunglum
Á undanföraum árum hefur
aukist mjög að nota gerfitungl til
staðsetninga. Aðferð þessi nefnist
sigling eftir gerfitunglum (satelle
navigation = satnav).
Magnavox Advanced Product
and Systems Co hefur nýlega sett á
markaðinn nýja gerð af tæki til
staðsetninga með gerfitunglum,
en fyrirtæki þetta hefur framleitt
slík tæki allt frá árinu 1968. Þetta
nýja tæki hefur hlotið nafnið MX
2102 SatelliteNavigator. MX2102
er fremur og ætlað í minni skip og
er því nokkuð fyrirferðar minna
en forveri þess MX 1242, en þó að
sögn framleiðanda jafn nákæmt
og gefur sömu möguleika og það
síðar nefnda.
Til að MX 2102 geri staðar-
ákvarðanir þarf tunglið að vera að
minnstakosti 6,5% yfir sjóndeild-
arhring en þó ekki hærra en 70°.
Sem stendur eru tunglin ekki nógu
mörg til að eitt tungl sé ávallt á
lofti.innan áður greindra marka.
En talið er að þau gerfitungl, sem
tæki frá Magnavox eru stillt á, gefi
möguleika á staðarákvörðunum
með 30 mín. millibili a 60° breidd.
Gerfihnöttur í Transit sateilite kerfinn.
Ameríski sjóherinn sendi tunglin á
loft og nefnast þau Transit satellite
system. Transit satellite system
gerði amerísku pólaris kafbátun-
um kleift að staðsetja sig mjög ná-
kvæmlega hvar sem þeir voru
staddir í heiminum, en það er ein-
mitt aðal kosturinn við að siglinga
eftir gerfitunglum.
Sjálfvirk bilanaleit
Brautir gerfitunglanna breytast
með tímanum og það kemur að
því að þau falla til jarðar og þá
verður að setja nú upp í staðinn.
Vegna þess eru stöðvar á jörðu
niðri sem reikna út brautir tungl-
anna á 12 tíma fresti. Upplýsing-
ar um brautina eru sendar uppí
tunglið sem geymir þær í minnis-
einingu sinni en sendir þær þó
jafnframt út með stuttu millibili.
MX 2102 Satellite Navingator-
inn notar upplýsingar um brautina
til að reikna út hvenær von er á
næsta nothæfu tungli. Talið er að
þetta gefi um 10% fleiri nothæfar
staðsetningar en ella. Milli staðar-
ákvarðana reiknar MX 2102 út
57