Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Side 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Side 6
Ritstjóraspjall: Um skólamál sjómanna / pes.su blaði er nokkuð skýrt frá tveimur mikil- vœgum páttum sjómannamenntunar hér á landi, sjóvinnukennslunni á grunnskólastiginu og menntun yfirmanna í Stýrimannaskólanum. Hvorttveggja er okkur ómissandi, og pá ekki síst sjóvinnukennslan á Reykjavíkursvœðinu, þar sem sjómennskan er fjarlœgari skólabörnum en í öðr- um byggðarlögum við ströndina. Það er ekki nema sjálfsagt, og eflaust pjóðhagslega nauðsyn- legt, að sem allra flestir unglingar í landinu fái kynnst af eigin raun peim atvinnuvegi sem gerir okkar eyríki byggilegt. Að ekki sé nú minnst á pað, að flestum krökkum pykir fátt í skólanum skemmtilegra en að fara með báti út á sjó og kynnast pví hvernig rennt er fyrir fisk. Þarna opnast peim nýr œvintýraheimur og pau fá smjörpefinn af pví, sem heldur sjómönnum við efnið: veiðivoninni. Nú er nýr skólastjóri Guðjón A Eyjólfsson sestur við stjórnvölinn í Stýrimannaskólanum, en Jónas Sigurðsson lét af pví embœtti s.l. sumar eftir langt og giftudrjúgt starf í skólamálum sjó- manna. Guðjón er maður sem veit hvað hann vill, og hann gerir sér fullvel grein fyrir pví, 'að einn veigamesti pátturinn í starfi hans er að berjast fyrir pví að verja og auka hlut skólans innan skólakerfisins og gagnvart fjárveitingavaldinu. Það er erfitt að halda uppi kröfuhárri kennslu, eins og okkur ber, ef kennarar hafa t.d. nauman aðgang að sérfrœðiritum og nýjunganámskeiðum vegna fjárskorts. Endur- og símenntun eru frœðsluhugtök sem fengið hafa á sig allt að pví slagorðablæ í allri umrœðu um skóla- og menntunarmál á undan- förnum árum. Við Samvinnuskólann í Bifröst í Borgarfirði hefur verið unnið brautryðjendastarf í pví að fœra starfandi fólki menntunina svo að segja heim í hlað. Kennarar skó/ans halda fjöldamörg námskeið um landsbyggðina alla fyrir starfsfólk samvinnuhreyfingarinnar, par sem starfandi fólki er gefinn kostur á að kynnast nýj- ungum er snerta störf pess og dusta rykið af gamalli og litt nýttri pekkingu. Hliðstœða pjón- ustu purfa sjómannaskólarnir okkar að veita, bœði hvað snertir tækninýjungar, endurmenntun og öryggismál. Þetta má gera með pví að hagnýta hljóð- og myndböndin, sem eru fyrir hendi í velflestum skipum flotans, og einnig á pann hátt, að kenn- arar skólans ferðist um og haldi námskeið áýms- um höfnum. Þessa starfsemi ættu hagsmunasam- tök sjómanna að styðja með oddi og egg, og beita áhrifum sínum á stjórnvöld á pann veg, að pessi starfsemi verði gerð skólunum fjárhagslega kleif. Þvi umfram al/t hefur pessi starfsemi pann kost, að hún heldur hugum sjómanna vakandi, en pað er alkunna að mannshugurinn stirðnar án æfing- ar og pegar vinna parf til lengdar einhæf störf og lýjandi. Með tilliti til pess hve sjómönnum er nauðsynlegt aðgeta gengið tilgóðrar vinnu í landi meðan peir eru enn I fullu fjöri er endur- og sí- menntun einnig nauðsyn/eg. Hérpurfa samtök sjómanna og skólarpeirra að leggjast á eitt og hrinda í framkvæmd hags- munamáli, sem er mikilvægara en margan pann grunar, sem lætur sér nægja að glugga I launa- umslagið sitt um hver mánaðamót og bölva síðan verðbólgunni. 6 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.